Tuesday, May 11, 2010

Smá samantekt... FINALLY ;)

Sælt veri fólkið... loksins loksins hugsa eflaust flestir.. en betra er seint en aldrei vinir ;)

Tímabilið er í rauninni búið að vera ótrúlegt. Hrikalega erfitt að lýsa þessu öllu með einhverjum orðum. Hlutirnir sem maður hefur upplifað og sumt sem maður hefur séð er gjörsamlega ólýsanlegt. Ég byrjaði á að fara á vit ævintýranna í Grikklandi og allir vita hvernig það ævintýri endaði. Það þýðir þó ekki að sú ákvörðun hafi verið til einskis, eða til ills. Þvert á móti. Ég hef þroskast gríðarlega sem manneskja og sem leikmaður. Ég spilaði vel úti í Grikklandi og skapaði mér gott orð sem leikmaður og þrátt fyrir að ég hafi tapað gríðarlegum peningum, þá sé ég ekki eftir að hafa farið. Ekki í eina mínútu. Þvílíkt ævintýri sem þetta var og þá meina ég það á bæði eins jákvæðan og neikvæðan hátt og það getur hugsast. Allavega, þetta er að baki. Í janúar samdi ég við HSC Bad Neustadt sem er í Regionalligu suður hérna í Þýskalandi. Sem sagt þriðju efstu deild. Regionalligurnar eru nú samtals 6 að tölu (ef að ég man rétt) og er sú sem ég spilaði nú í sú langsterkasta og segja fróðir menn að ansi litlu, ef einhverju, muni á minni deild og 2. Bundesligu. Enn og aftur heyrðust einhverjar efasemdaraddir þegar maður ákvað að skella sér á þennan valkost, frekar en eitthvað annað sem var í boði. Ég veit ekki hvað þetta er, ég held að mér líki bara svona vel að vera umdeildur. En nei, svona án alls gríns þá held ég að þetta hafi verið hið fullkomna skref fyrir mig. Þetta var skref númer 2 í stiganum mínum. Mörg skref eru eftir, en þannig á það líka að vera. Ég er að gera þetta á mínum forsendum og þetta er mín leið. Sú leið sem ég er handviss um að muni gera sig þegar uppi er staðið. Ég er með ákveðin markmið í gangi og þeir sem þekkja mig best þurfa nú ekki að velta því lengi fyrir sér hver þau eru. Ég stefni ótrauður á þessi markmið og hef aldrei hætt að trúa að þau muni verða að veruleika. Bara spurning um hvenær, og ef ég þekki sjálfan mig rétt þá er styttra í það en margur hefði haldið. Þessi seinni partur tímabilsins er búinn að vera framar öllum björtustu vonum. Líkt og þegar ég fór út til Grikklands, þá vissi ég ekkert við hverju átti að búast. Hvernig eru gæðin á boltanum? Er þetta of stórt skref? Er þetta of lítið skref? Get ég verið einn úti? Hvernig verður hnéið? Hvernig fitta ég inn í kúltúrinn? Hvernig fitta ég inn í Þýska boltann? Þetta er bara partur af því sem fór strax í gegnum hugann. Hver einn og einasti þáttur þessa ferlis hefur verið svo 100% að það er nánast lygilegt. Mér hefur aldrei gengið betur. Ég hef aldrei verið betri í handbolta. Minn sterkasti þáttur sem leikmaður, varnarleikurinn, hefur farið enn meira vaxandi. Skilningurinn sem ég hef orðið á leiknum og reynslan sem ég hef þegar öðlast er eitthvað sem erfitt er að lýsa hér. Sóknarleikurinn hefur einnig jafnt og þétt farið vaxandi, sem og allar aðrar hliðar leiksins. Ég er á stuttum tíma búinn að vaxa uppúr efnilegum litlum meiðslapésa í góðan leikmann og finn að ég vex með hverjum deginum sem líður. Umgjörðin kringum klúbbinn er eins og best verður á kosið og í rauninni ekki annað hægt að segja en að maður sé hálfdekraður hérna. Þetta er mikill fjölskylduklúbbur þar sem lagt er mikið upp úr því að leikmönnum líði vel og séu ánægðir. Áhuginn fyrir handbolta hérna er gríðarlega mikill og þetta minnir mig svolítið á gömlu góðu tímana heima á Akureyri, þegar einfaldlega allt snérist um handbolta. Nú er ég hins vegar í talsvert öðru og skemmtilegra hlutverki og fæ að vera stór partur af þessu öllu saman. Það eitt og sér væri í rauninni nóg verðlaun fyrir mig, en er eingöngu lítill partur af því skemmtilega og risastóra batteríi sem snýst í kringum klúbbinn. Það tæki langan tíma að fara að telja upp allt hér sem hefur drifið á daga mína, eða lista allt sem ég er ánægður með og eflaust fáir sem myndu nenna að lesa svoleiðis kjaftæði. Ég er allavega ánægður, mér líður vel, ég veit innra með mér að ég tók rétta skrefið, ég veit að ég er á réttri braut í átt að mínum markmiðum, tímabilið hefur gengið hrikalega vel, ég er búinn að skrifa undir nýjan samning við klúbbinn fyrir næsta ár og ég hef ansi góða tilfinningu fyrir að næsta tímabil verði mitt tímabil. Þetta er svona það sem rennur í gegnum hugann núna.



Nú er ég nýkominn úr aðgerð sem virðist hafa tekist bara ansi vel og við tekur erfitt program næstu vikurnar. Þetta er hins vegar jákvætt skref fyrir mig, það er ég viss um. Heimsklassa læknir sem framkvæmdi aðgerðina og hann er að gefa mér 100% batahorfur ef allt gengur upp. Það er rosalega skemmtilegt að hugsa út í það að ég gæti verið að fara spila handbolta af 100% krafti á næsta tímabili, vá sko! Það hefur ekki gerst síðan ég var 17 ára. Tilhugsunin við að geta æft og spilað verkjalaus...... Ætla ekki einu sinni að segja ykkur hversu mikið ég mun leggja á mig núna til að láta það verða að veruleika!


Nú svo er ég að koma heim á klakann von bráðar. Reikna með að það verði á næstu 2-3 dögum... á allt eftir að ráðast út af þessu blessaða eldfjalli okkar. Löppin er ekki að fara samþykkja eitthvað annað en beint flug heim á fyrsta farrými, en ekki eitthvað millilendingarbíó þar sem bíða þarf klukkustundum saman.


Svo er nú ekki hægt að klára þessa færslu án þess að minnast á nokkra góða pæja sem eru manni nákomnir!!! Fyrstan ber nú kannski að nefna hann Gunna Stein sem er búinn að eiga gjörsamlega fáránlegt tímabil.... ég get varla lýst því hversu stoltur ég er af drengnum... Árni Sigtryggs er að koma út til Þýskalands og Halla með honum.. það verður magnað að fá svona góða vini hingað nálægt!! Get ekki beðið... Svo er Addi Mall búinn að semja líka.. verður gaman að fá hann í menninguna! Einsi er búinn að standa sig eins og hetja hjá Nordhorn.. góðar kveðjur þangað... Er stoltur af Akureyringunum mínum svo...! Vantaði bara herslumuninn að klára hlutina og komast í úrslitin.... Vinur minn Jonni Magg að fara til Noregs og þar mun annar snillingur hann Gunni Magg þjálfa... innilega til lukku allir saman og auðvitað svo miklu fleiri sem maður man ekki eftir akkúrat núna..!! ...og auðvitað Haukar með titilinn heima ;)



Enda þetta á tveimur myndum:



Svona skilti var fólk með útum allt upp í stúku á lokaleiknum í deildinni á laugardaginn... það var rosalega mögnuð tilfinning!




Hérna er kallinn vægast sagt öruggur á 7 metrunum... ;)

Góðar stundir gott fólk og hafið það sem allra best!!!


Kær kveðja,


Raggi

5 comments:

  1. Ánægður með þig !

    Tökum einn eða tvo hlandvolga á klakanum.

    RokkAri

    ReplyDelete
  2. Welcome back ;o*
    Lots of love
    Ma

    ReplyDelete
  3. Va hvad tetta hefur verid mikid aevintyri fyrir tig ad fara ut og eg er tvilikt anaegd med tig ad hafa gert tad.
    Tetta er kannski ekki mindsettid hja ollum en madur a ad elta drauminn sinn og lata verda af tvi ad reyna ad na sinum markmidum i lifinu. Frabaert hja ter.
    Vonandi fer hned ad verda betra, hlakka til ad sja tig i sumar og takk fyrir gott spjall i gaer. knus
    jonna

    ReplyDelete
  4. Hey flottastur!! Virkilega ánægður með fyrsta blogg ársins 2010...
    Þakka góðar kveðjur!

    Annars get ég ekki beðið eftir því þegar Árni heldur partý á næsta ári og við flestir þessir snillingar hittumst á miðri leið í Dormagen!!

    ReplyDelete
  5. Ari: Klárt mál vinur! ;)

    Ma: A lot of love straight back at ya! ;*

    Jonna: Ég þakka hlý orð.. hlakka líka til að hitta ykkur og hafið það sem allra best. Kærar kveðjur :)

    Einsi: Hljómar fáránlega vel... Get varla beðið!!! Sjáumst vonandi ferskir sem fyrst ;)

    ReplyDelete