Sælt veri fólkið!
Verð að opna þessa færslu á agalega góðu lagi sem er á repeat hjá mér þessa dagana:
http://www.youtube.com/watch?v=Wd0Y1Sko7hA
Héðan er bara nokkuð gott að frétta og menn eru í ferskari kantinum. Í fréttum er helst að við spiluðum síðastliðna helgi við topplið Zafeirakis á heimavelli þeirra. Þessi leikur var jafn á nánast öllum tölum frá byrjun til enda og endaði með grátlegu eins marks tapi, 30-29. Það var virkilega mikil stemmning á leiknum og áðdáendur Zafeirakis eiga hrós skilið fyrir flottan stuðning. Alltaf gaman að spila svona leiki þar sem maður heyrir ekki í sjálfum sér fyrir hávaða. Sama hvort það er á heima- eða útivelli. Ég fékk tækifæri þegar það voru 2 sek til leiksloka að jafna... fékk boltann fyrir utan og hamraði á markið en setti hann í utanverða stöngina... virkilega svekkjandi! En svona er þetta stundum, stöngin inn - stöngin út... þetta er bara svoleiðis sport. Annars gekk mér bara vel í leiknum, setti 4 góð mörk, fann aðra vel og stóð vörnina með miklum sóma.
Næsti leikur er á morgun en það er sjónvarpsleikur gegn Filippos Veroias... þeir eru með hörkulið og mikla sögu á bak við sig. Menn tala um að þetta sé frægasta nafnið héðan frá Grikklandi, en fyrir nokkrum árum síðan voru þeir að gera góða hluti heima og í Evrópukeppnunum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá 2 stig út úr þessum leik á morgun til að laga stöðu okkar í deildinni aðeins, en stigin hafa ekki verið að detta inn hjá okkur eftir að danski markmaðurinn meiddist. Það hefur verið hrikalegur missir, því hann er solid 20-25 bolta maður í hverjum leik og vinnur virkilega vel með okkur í 6-0 vörninni. Góðu fréttirnar eru þær að hann mun spila á morgun, þannig að ég hef enga trú á öðru en að við komumst aftur á sigurbraut.
Meira í þessu... búið er að draga í 16 liða úrslit í Evrópukeppninni. Fengum Sporting Club Lissabon sem er mjög skemmtilegur og krefjandi dráttur og það verður nú örugglega ekkert leiðinlegt að skella sér til Portúgals.
Svo er maður búinn að panta sér flugmiða heim fyrir jólin!!! Ég lendi á klakanum þann 20. des um kvöldið og keyri norður til Akureyrar með henni Ástu minni morguninn eftir. Get eiginlega ekki lýst því hvað manni hlakkar til að komast heim í smá frí og hitta allt fólkið sitt! ;)
Svo vil ég enda þetta á einu stutti vidjói í tilefni þess að það styttist í grannaslaginn PAOK-Thermaikos... DJÖFULL verður það skemmtilegt!! ;)
http://www.youtube.com/watch?v=YlhXapbZhcM
Hafið það sem allra best snillingar!!
Njálsson kveður að sinni... :)
Sæll elskan
ReplyDeleteer alveg að fíla þetta lag ;o)
Takk fyrir góða og skemmtilega færslu - alltaf jafn gaman að sjá eitthvað nýtt hér ;o*
Hlökkum alveg gríðarlega mikið til jólanna þetta árið og erum farin að telja niður dagana þangað til þú kemur !! Gangi þér rosalega vel á morgun elsku kallinn - Veit allavega að þú gerir þitt besta eins og alltaf - LOVJÚ MA
Hvernig er það Ragnar ert þú ekkert að hooliganast á körfuknattleiks- eða fótboltaleikjum. Hugsa að þú fáir ekki mikið betri lærifeður heldur en Grikkjan. Hann er alveg klikk á því. Bestu kveðjur
ReplyDeleteMagnús Friðrik
Blessaður meistari Magnús!
ReplyDeleteHeyrðu maður hefur ekki ennþá látið verða að því að fara á leik en við félagarnir stefnum á að fara á fótboltaleik fyrir jól. Stemmningin á leikjunum hérna er víst algerlega ólýsanleg og fólk er gjörsamlega að ganga af göflunum! Ég stefni á að taka einn PAOK leik núna á næstunni og vera manna trylltastur... jafnvel að henda í eitt stykki neyðarblys í leiðinni ;)
Líst vel á
ReplyDeletekv. Magnús
Essaður meistari! Óhætt að segja að það hafi verið kominn tími á símtalið í gær!
ReplyDeleteTöff lag en ég verð einmitt að benda þér á tvö lög sem eru á repeat hjá mér þessa dagana. Tvö lög með meisturum Lynyrd Skynyrd:
http://www.youtube.com/watch?v=gLQrbo_i2Zw&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=sHQ_aTjXObs&feature=related
Mæli með að hækka vel í kvikyndinu, þetta er gamalt og gott stöff!
Heyrumst félagi,
Kv. Andri Snær
Blessaður Reggz
ReplyDeleteKallinn þarf að gera mér greiða fyrir leikinn gegn Paok!
Þú þarft að fara fyrir mig og kaupa 2 flöskur af Reggina víninu og gefa vini mínum Sótos þær. Hann er línumaður í Paok.
Óskar honum svo til hamingju með jólin og segir honum að hann eigi að senda mér e-mail!
Græjar kallinn það?
Ísbjörn
Only 18 days and counting ;o*
ReplyDeleteMISS U A LOT !!!
LOVJÚ Ma
Já Andri það var sko heldur betur kominn tími á þetta!! Þakka þér þakka þér ;)
ReplyDeleteEn já þessi lög eru náttúrulega tímalaus klassík!
Ísbjörn, lítið mál að redda þessu... þarf bara info hvar ég á að kaupa þetta og svona. Bjallaðu í gríska númerið mitt á morgun.
Miss u too ma ;*
ég addaði þér á skype. bjallaðu á mig
ReplyDeleteÍsbjörn
Sælir gamli..
ReplyDeleteAlltaf gaman að lesa bloggið hjá þér og fá að fylgjast aðeins með.. En allavega var ég að reyna að gera e-ð allt annað en að læra fyrir próf og rakst þá á þetta myndbrot frá Greece.. Vona að þú eigir ekki eftir að lenda í svona liði þarna niður frá.. :P
http://www.youtube.com/watch?v=tIqYzqDuLZM
En gangi þér allt í haginn.. sjáumst vonandi hressir á Ak city von bráðar.. ;)
Kiddi var búinn að senda þér svar á facebook ;)
ReplyDeleteSæælir Snorri, gaman að heyra frá þér! Haha þetta myndband er náttúrulega bara rugl... ekki alveg með þetta þessir drengir :p ekki nóg með það að vera slakir í handbolta, þá virðist þurfa að kenna þeim mannasiði líka...
en jú við sjáumst vonandi sprækir á eyrinni bráðlega... ég mæti í bæinn 21. des :)
Jæja Rammi, fer að detta inn blogg bráðlega eða á maður að kötta síðuna út úr netrúntinum? ;)
ReplyDeletekv.
Árni
Nei gamli! Þessu verður hent inn í dag! ;)
ReplyDelete