Monday, November 16, 2009

Margt búið að gerast......

Ég veit aldrei hvernig ég á að opna bloggfærslurnar mínar... persónulega finnst mér ég verða gera það á töluvert hressari hátt en hingað til.... "jú komið þið sæl og blessuð" er orðið frekar þreytt er það ekki?? Komið endilega með einhverjar ábendingar... sigurvegarinn fær að launum vegleg verðlaun seinna meir.......! ;)

Halló allir... hvítir sem svartir sem gulir sem gráir!

Hér er ætlunin að henda inn einu örstuttu bloggi, þar sem að ég er gjörsamlega búinn að skíta upp á bak í bloggskrifum mínum hingað til.... en óhætt er að segja að félagi minn hann RK Berlín hafi komist vel að orði þegar hann sagði að ég væri í tuddaformi inn á vellinum, en hrikalega slöku bloggformi! Ætlunin er að bæta úr þessu og fara að hysja upp um sig brækurnar... ég er líka með þá hugmynd í kollinum að skrifa mun tíðar og mun styttra í einu ( svona nettur twitter fílingur)... er fólk að taka vel í það?? Eða er það kannski frekar ópersónulegt? You tell me......

En já... það er óhætt að segja að margt hafi gerst síðan ég henti inn færslu síðast! Menn eru ekki beint að deyja úr stressi hérna í Grikklandinu og eins ég var áður búinn að koma inn á þá eru þessi kvikindi latari en allt.. og ekki sjaldgæft að maður þurfi að segja sama hlutinn við fólk aftur og aftur til að fá hann framkvæmdan! Það er líka svolítið þannig hjá gæjunum í kringum klúbbinn.. þeir eru svolítið stórir í kjaftinum... en eiga erfiðara með að framkvæma það sem þeir segja... einfaldir hlutir eins og að fá internet í heimahúsið.... hita á húsið ( já HITA, það er byrjað að kólna aðeins) og annað slíkt. Einnig er það bara eðlilegt fyrir þeim að borga manni 2-3 vikum of seint.... en hey! svona er andrúmsloftið hérna bara... menn eru ansi hreint slakir á því og hægt að sjá bæði jákvæða og neikvæða hluti við það.

En yfir í það næsta... við erum búnir að spila nokkra leiki síðan síðast og ber þar hæst að nefna síðustu þrjá... spiluðum í síðustu viku við Jóa og félaga í Panellinios og er óhætt að segja að við höfum spilað illa í þeim leik... þeir tóku okkur í kennslu í handboltafræðum og unnu nokkuð auðveldan sigur á okkur.... ég meiddist frekar snemma leiks og þurfti að fara útaf! fór úr lið á putta og brákaðist.... en það er allt að koma til núna. Jói stóð sig hins vegar vel og var ekki leiðinlegt að hitta kallinn loksins... hrikalega gott að geta talað aðeins íslensku og slakað á með fellow icelander! Ég held ég geti líka fullyrt að við höfum vera að skrifa part af sögubókunum með þessum leik... klárlega í fyrsti skipti þar sem íslendingar mætast í grísku deildinni!! vúhú...

Núna um helgina voru svo leikir í 3. umferð Evrópukeppninnar á móti sterku liði RK Berrane frá Serbíu... þetta er í 3. skipti sem ég er svo heppinn að fá það tækifæri að taka þátt í Evrópukeppni með mínu liði... alltaf skemmtileg tilfinning! Meira undir einhvern veginn og mikill heiður að spila gegn sterkum liðum... Hef spilað áður með KA og HK í þessum keppnum.
Allavega, það er óhætt að segja að mér hafi gengið hrikalega vel í þessum leikjum og vakið mikla athygli. Í fyrri leiknum á laugardaginn fór ég fyrir mínu liði og það gekk einhvern veginn allt fullkomlega upp sem ég gerði... mér leið frábærlega inn á vellinum og greinilegt að aukaæfingarnar eru að skila sér... ræktin, skotin og hugsunin... allt sem ég talaði um í síðustu færslu. Ég setti 14 mörk ú 15 skotum í þessum leik og aðeins 3 þeirra úr vítum... einnig átti ég nokkrar góðar stoðsendingar og spilaði í hjarta varnarinnar. Hrikalega gaman að sýna hvað maður getur á þessu leveli og hef ég fengið mikla athygli frá grískum fjölmiðlum eftir þennan leik... og mér finnst það heldur ekkert leiðinlegt... hehe

Ég hins vegar VERÐ að fara núna....
lofa að klára framhaldið á morgun!!! Bíðið spennt

Hafið það sem allra best,

Riiisastór kveðja,

Raggi

8 comments:

  1. Flott hjá þér litli minn, og til hamingju með góðan leik.
    Haltu bara áfram á sömu braut.
    Sjáumst hress og kát um jólin
    knús á þig frá okkur gamla settinu
    í Arnarsíðunni

    ReplyDelete
  2. Ég legg til að þú opnir alltaf bloggin þín með því að segja frá hvað þú dreymdir nóttina á undan. Þá gildir yfir allt sem þig dreymir, t.d. ef þú dreymir erótík með Mariu Potaskja þá verður þú að henda því inn....

    Annars hrikalega ánægður með þig nafni, haltu áfram að standa þig!

    Verðum í bandi vinur,

    Kv. Andri Snær

    ReplyDelete
  3. Ég vil að þú byrjir hverja færslu með broti úr lagi sem lýsir líðan þinni í það skiptið....

    En annars bara flottur og haltu áfram á beinu brautinni.

    PS. Andri hvað varst þú að reykja eiginlega???

    kv. Gummi H

    ReplyDelete
  4. Takk fyrir það Helga mín og kærar kveðjur til baka í Arnarsíðuna :)

    Andri, þú ert einn vafasamur gaur.... haha

    Gummi, ég er að taka agalega vel í þessa hugmynd hjá þér... klárlega tekið vel til greina ;)

    ReplyDelete
  5. Held að það skipti ekki máli á hverju þú byrjar elskan mín því aðalmálið er að fá fréttir og geta fylgst með þér ;o) Þú hefur nú alltaf verið nokkuð góður penni og kannt að segja skemmtilega frá þannig að ég myndi nú ekkert vera að breyta stílnum mikið hehe - Annars bara ótrúlega stolt af því að vera mamma þín og vinur og hlakka rosalega til jólanna í fyrsta skipti hehehehe
    Vonandi tekst þér af standa vel í Zafirökunum á morgun veit allavega að þú gerir þitt besta.
    Elska þig ;o*

    ReplyDelete
  6. Þetta er drulluflott hjá þér Raggi. Keep it up :) Ertu ekki örugglega kominn með Wii og farinn að kenna mönnum að spila keilu þarna ?

    Kv;

    Brynjar F. Valsteinsson

    ReplyDelete
  7. Það er alveg að koma 21 des hehehe
    Lovjú ;o*

    ReplyDelete
  8. Takk fyrir það meistari Brynjar! ;)
    Hehe er reyndar ekki með Wii, en við erum með Play Station og ég er vægast sagt orðinn massagóður í Pes2010! :)

    Jebb 21. des maður... þetta fer að detta inn! :)

    ReplyDelete