Friday, November 27, 2009

Styttist í heimkomu :)

Sælt veri fólkið!

Verð að opna þessa færslu á agalega góðu lagi sem er á repeat hjá mér þessa dagana:

http://www.youtube.com/watch?v=Wd0Y1Sko7hA

Héðan er bara nokkuð gott að frétta og menn eru í ferskari kantinum. Í fréttum er helst að við spiluðum síðastliðna helgi við topplið Zafeirakis á heimavelli þeirra. Þessi leikur var jafn á nánast öllum tölum frá byrjun til enda og endaði með grátlegu eins marks tapi, 30-29. Það var virkilega mikil stemmning á leiknum og áðdáendur Zafeirakis eiga hrós skilið fyrir flottan stuðning. Alltaf gaman að spila svona leiki þar sem maður heyrir ekki í sjálfum sér fyrir hávaða. Sama hvort það er á heima- eða útivelli. Ég fékk tækifæri þegar það voru 2 sek til leiksloka að jafna... fékk boltann fyrir utan og hamraði á markið en setti hann í utanverða stöngina... virkilega svekkjandi! En svona er þetta stundum, stöngin inn - stöngin út... þetta er bara svoleiðis sport. Annars gekk mér bara vel í leiknum, setti 4 góð mörk, fann aðra vel og stóð vörnina með miklum sóma.

Næsti leikur er á morgun en það er sjónvarpsleikur gegn Filippos Veroias... þeir eru með hörkulið og mikla sögu á bak við sig. Menn tala um að þetta sé frægasta nafnið héðan frá Grikklandi, en fyrir nokkrum árum síðan voru þeir að gera góða hluti heima og í Evrópukeppnunum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá 2 stig út úr þessum leik á morgun til að laga stöðu okkar í deildinni aðeins, en stigin hafa ekki verið að detta inn hjá okkur eftir að danski markmaðurinn meiddist. Það hefur verið hrikalegur missir, því hann er solid 20-25 bolta maður í hverjum leik og vinnur virkilega vel með okkur í 6-0 vörninni. Góðu fréttirnar eru þær að hann mun spila á morgun, þannig að ég hef enga trú á öðru en að við komumst aftur á sigurbraut.

Meira í þessu... búið er að draga í 16 liða úrslit í Evrópukeppninni. Fengum Sporting Club Lissabon sem er mjög skemmtilegur og krefjandi dráttur og það verður nú örugglega ekkert leiðinlegt að skella sér til Portúgals.

Svo er maður búinn að panta sér flugmiða heim fyrir jólin!!! Ég lendi á klakanum þann 20. des um kvöldið og keyri norður til Akureyrar með henni Ástu minni morguninn eftir. Get eiginlega ekki lýst því hvað manni hlakkar til að komast heim í smá frí og hitta allt fólkið sitt! ;)

Svo vil ég enda þetta á einu stutti vidjói í tilefni þess að það styttist í grannaslaginn PAOK-Thermaikos... DJÖFULL verður það skemmtilegt!! ;)

http://www.youtube.com/watch?v=YlhXapbZhcM

Hafið það sem allra best snillingar!!

Njálsson kveður að sinni... :)

Monday, November 16, 2009

Margt búið að gerast......

Ég veit aldrei hvernig ég á að opna bloggfærslurnar mínar... persónulega finnst mér ég verða gera það á töluvert hressari hátt en hingað til.... "jú komið þið sæl og blessuð" er orðið frekar þreytt er það ekki?? Komið endilega með einhverjar ábendingar... sigurvegarinn fær að launum vegleg verðlaun seinna meir.......! ;)

Halló allir... hvítir sem svartir sem gulir sem gráir!

Hér er ætlunin að henda inn einu örstuttu bloggi, þar sem að ég er gjörsamlega búinn að skíta upp á bak í bloggskrifum mínum hingað til.... en óhætt er að segja að félagi minn hann RK Berlín hafi komist vel að orði þegar hann sagði að ég væri í tuddaformi inn á vellinum, en hrikalega slöku bloggformi! Ætlunin er að bæta úr þessu og fara að hysja upp um sig brækurnar... ég er líka með þá hugmynd í kollinum að skrifa mun tíðar og mun styttra í einu ( svona nettur twitter fílingur)... er fólk að taka vel í það?? Eða er það kannski frekar ópersónulegt? You tell me......

En já... það er óhætt að segja að margt hafi gerst síðan ég henti inn færslu síðast! Menn eru ekki beint að deyja úr stressi hérna í Grikklandinu og eins ég var áður búinn að koma inn á þá eru þessi kvikindi latari en allt.. og ekki sjaldgæft að maður þurfi að segja sama hlutinn við fólk aftur og aftur til að fá hann framkvæmdan! Það er líka svolítið þannig hjá gæjunum í kringum klúbbinn.. þeir eru svolítið stórir í kjaftinum... en eiga erfiðara með að framkvæma það sem þeir segja... einfaldir hlutir eins og að fá internet í heimahúsið.... hita á húsið ( já HITA, það er byrjað að kólna aðeins) og annað slíkt. Einnig er það bara eðlilegt fyrir þeim að borga manni 2-3 vikum of seint.... en hey! svona er andrúmsloftið hérna bara... menn eru ansi hreint slakir á því og hægt að sjá bæði jákvæða og neikvæða hluti við það.

En yfir í það næsta... við erum búnir að spila nokkra leiki síðan síðast og ber þar hæst að nefna síðustu þrjá... spiluðum í síðustu viku við Jóa og félaga í Panellinios og er óhætt að segja að við höfum spilað illa í þeim leik... þeir tóku okkur í kennslu í handboltafræðum og unnu nokkuð auðveldan sigur á okkur.... ég meiddist frekar snemma leiks og þurfti að fara útaf! fór úr lið á putta og brákaðist.... en það er allt að koma til núna. Jói stóð sig hins vegar vel og var ekki leiðinlegt að hitta kallinn loksins... hrikalega gott að geta talað aðeins íslensku og slakað á með fellow icelander! Ég held ég geti líka fullyrt að við höfum vera að skrifa part af sögubókunum með þessum leik... klárlega í fyrsti skipti þar sem íslendingar mætast í grísku deildinni!! vúhú...

Núna um helgina voru svo leikir í 3. umferð Evrópukeppninnar á móti sterku liði RK Berrane frá Serbíu... þetta er í 3. skipti sem ég er svo heppinn að fá það tækifæri að taka þátt í Evrópukeppni með mínu liði... alltaf skemmtileg tilfinning! Meira undir einhvern veginn og mikill heiður að spila gegn sterkum liðum... Hef spilað áður með KA og HK í þessum keppnum.
Allavega, það er óhætt að segja að mér hafi gengið hrikalega vel í þessum leikjum og vakið mikla athygli. Í fyrri leiknum á laugardaginn fór ég fyrir mínu liði og það gekk einhvern veginn allt fullkomlega upp sem ég gerði... mér leið frábærlega inn á vellinum og greinilegt að aukaæfingarnar eru að skila sér... ræktin, skotin og hugsunin... allt sem ég talaði um í síðustu færslu. Ég setti 14 mörk ú 15 skotum í þessum leik og aðeins 3 þeirra úr vítum... einnig átti ég nokkrar góðar stoðsendingar og spilaði í hjarta varnarinnar. Hrikalega gaman að sýna hvað maður getur á þessu leveli og hef ég fengið mikla athygli frá grískum fjölmiðlum eftir þennan leik... og mér finnst það heldur ekkert leiðinlegt... hehe

Ég hins vegar VERÐ að fara núna....
lofa að klára framhaldið á morgun!!! Bíðið spennt

Hafið það sem allra best,

Riiisastór kveðja,

Raggi