Sælt veri fólkið!
Ég ætla að hafa þetta stutt í þetta skiptið þar sem að hún Ásta mín er í heimsókn og það þýðir ekkert að vera að eyða tíma á internetinu..... ;)
Um síðustu helgi fórum við til Krítar og spiluðum við Kydon Hanion, en þeir eru með ansi gott lið þetta tímabilið. Við vissum því að við ættum erfiðan leik fyrir höndum og þyrftum að spila okkar besta leik til að vinna. Eins og oft áður þá var mikið jafnræði með liðunum framan af leik og mikið um harðar varnir. Við náðum hins vegar að hrista þá af okkur fljótlega og vorum yfir í hálfleik. Við komumst síðan mest í 8 marka forystu í seinni hálfleik, en þeir náðu að minnka muninn niður í 2 mörk á tímabili. Þá sögðum við hingað og ekki lengra og jukum muninn aftur. Leikurinn endaði svo með gríðarlega sanngjörnum og mikilvægum 5 marka sigri, 29-34. Ég var að finna mig hrikalega vel í þessum leik og setti 10 slummur í öllum regnbogans litum!! Ekki leiðinlegt það...
Annars var þvílíkt gaman að koma til Krítar og get sagt með vissu að ég mun koma þangað aftur. Get ekki sagt annað en að það kitli svolítið að fara þangað í vikufrí eftir tímabilið. Endilega látið mig vita ef þið eruð game ;)
Næsti leikur er svo á morgun á heimavelli gegn Kilkis og það verður einnig mjög erfiður leikur, en liðin virðast vera mjög jöfn í deildinni í ár og allir eru að vinna alla.
Annað í fréttum er að Ásta er búin að vera hérna í nokkra daga og það er alger snilld. Við erum búin að vera dugleg við að skoða okkur um og fórum meðal annars í dagsferð til Thessaloniki á miðvikudaginn. Fórum í allar helstu búðirnar og Ásta var ekki í vandræðum með að finna sér föt ;)
Hendi inn góðu bloggi eftir leikinn og skelli inn fullt af ferskum myndum.
Manneskja vikunnar: Gústaf Úlfarsson, fyrir að vera hreinræktaður snillingur sem alltaf er hægt að treysta á. Maður sem allir geta tekið sér til fyrirmyndar.
Hafið það gott kæra fólk.
#44
Sæll elskan mín - frábært að heyra að allt gengur vel - skil fullkomlega að Ásta sé meira spennandi en netið hahaha- Trúi því að þið vinnið næsta leik líka- veit að þú munt gera þitt 100% besta - Lovja
ReplyDeleteTil hamingju með sigurinn og vonandi kemur annar sigur í dagur!! stay fress
ReplyDeleteKv Gústaf úlfarsson
í dag átti þetta að vera
ReplyDeleteSæll félagi.
ReplyDeleteFlott að geta fylgst með þér hérna.
Gangi þér vel.
ÁRNI STEF
Gríðarlega vel gert meistari.. Ég reyndi að hringja í þig þegar maður heyrði að hvíti turninn hafði átt stórleik, en það var alltaf slökkt á síma helvítinu!
ReplyDeleteNýtt númer eða?
Annars virkilega góðar kveðjur
Klárt mál ma ;)
ReplyDeleteGuz, þú ert eini maðurinn!!
Gaman að heyra frá þér Árni :)
Yo Einsi! Ég var búinn með innistæðuna á gríska kortinu og var þess vegna með íslenska kortið í... en nei ennþá sama númer ;) heyrumst í dag eða á morgun gamli.