Saturday, October 31, 2009

Fyrsta tapið staðreynd, en ég markahæstur 3. leikinn í röð!

Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og afsakið biðina!!

Síðasti leikur var á laugardaginn á móti Kilkis á heimavelli. Fyrirfram var búist við hörkuleik, enda um tvö jöfn lið að ræða. Lið sem geta bæði blandað sér í toppbaráttuna ef rétt er haldið á spilunum. Sú varð raunin, jafnt á nánast öllum tölum og mikil spenna. Jafnt var í hálfleik og enn þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Við gerum svo nokkur afdrifarík mistök sóknarlega, ásamt því sem okkar skapheiti þjálfari fékk 2 mín á crucial tímapunkti. Ég gæti svo talað vel og lengi um þátt dómaranna, en læt nægja að segja að þeir áttu ekki sinn besta dag og óhætt að segja að það hafi hallað ansi mikið á okkur. Leikurinn endar með hrikalega svekkjandi tveggja marka tapi og fyrsta tapið í deildinni því staðreynd. Ég átti ágætis leik og var markahæstur í okkar liði 3. leikinn í röð, með 7 mörk í þetta skiptið.




Talandi um markaskorun, þá er ég eins og stendur markahæsti maður liðsins í deildinni með 25 mörk eftir 5 leiki og 10. markahæsti maðurinn í deildinni. Það er ánægjulegt, þó svo að það sé ekki það sem mestu máli skiptir heldur gengi liðsins. Ég veit hins vegar að ég get gert enn betur og það er það sem ég ætla mér að gera. Markmiðasetning er hugtak sem ég er alltaf að tileinka mér betur og betur og það hjálpar mér gríðarlega mikið að setja sjálfum mér stighækkandi markmið fyrir ca. 1-2 mánuði í senn. Ég er búinn að setja mér 4 lítil markmið sem ég ætla mér að ná fyrir jólafrí. Ég ætla að sýna ykkur styttar útgáfur af þessum markmiðum hérna, svona aðeins til að útskýra hvernig ég hugsa hlutina og hvað það er sem ég geri til að reyna að bæta leik minn:

1. Verða enn betri varnarmaður. Bæta fótavinnu, tímasetningar og tækni við að brjóta á sóknarmönnum. Skoða einnig staðsetningar þegar bolti er ekki nálægt, til að mynda gagnvart línumanni til að auðvelda varnarvinnu mína og samspilara minna seinna meir.

2. Hugsa út fyrir rammann á hverri einustu æfingu. Hugsa fram í tímann í hverju atriði og reyna að sjá það sem aðrir sjá ekki og auka þannig sýn mína yfir völlinn og leikinn í heild sinni. Reyna sjá mismunandi vinkla á hlutunum og að kryfja hvert atriði niður í huganum og bæta þannig ákvörðunartöku. Alltaf að beita jákvæðu hugarfari og framkvæma hlutina með opnum huga.

3. Vera sífelld ógn sóknarlega. Bæta hreyfingu án bolta, tímasetningu hlaupa og minnka skref í aðhlaupi til að auka sprengju og auðvelda stefnubreytingar. Bæta skottækni enn meira og nota 20 mín eftir hverja æfingu til að æfa mismunandi týpur af skotum. Stefnan sett á að vera markahæsti maður míns liðs fyrir jól.

4. Vera eins professional og mögulegt er í mataræði og svefnvenjum. Aldrei að láta viðráðanlegar utanaðkomandi aðstæður hafa áhrif á frammistöðu mína inn á vellinum. Taka aukarækt alltaf þegar möguleiki er á og leikjaplan leyfir. Þar legg ég mjög mikla áherslu á lappir, maga og bak.

Þetta er svona ca. það sem ég var búinn að setja niður á blað og er þegar farinn að vinna á fullu í.

Næsti leikur er á útivelli gegn Edessa, en þeir eru búnir að styrkja sig talsvert frá síðustu leiktíð og eru sem stendur einu stigi á undan okkur í 4. sæti.

Annað í fréttum er að Ásta mín kom í heimsókn og var í 10 daga. Það var magnaður tími og við gerðum margt og mikið, m.a. verslunarferð til Thessaloniki og fullt fleira. Vonandi að hún komi oftar í heimsókn þessi elska, því þá er allt svo miklu auðveldara. En ef að fólk er áhugasamt um að koma út í heimsókn, þá er bara um að gera að heyra í mér og við græjum einhvern góðan pakka.


Ég og Ásta áttum 10 æðislega daga


Ég vil svo nota tækifærið og óska góðum vini mínum honum Heiðmari Guðmundssyni, innilega til hamingju með daginn!! ;)

Jæja, ég verð að þjóta! Hafið það sem allra best öllsömul og endilega skiljið eftir comment og ég svara um leið og ég get :)

Kær kv.
Raggi

10 comments:

  1. Sæll elskan mín - Það er alltaf jafn gaman að sjá eitthvað nýtt á þessari síðu. Til hamingju með árangurinn í deildinni markalega séð :o)Ég veit að þú reynir að bæta þig á hverjum degi og leggur þig alltaf 100% fram á vellinum. Veit að þið eigið mikið inni og vona að það komi sem fyrst í ljós, því eins og þú segir eru það stigin sem gilda í heildina. Frábært að fá heimsóknir en alltaf dapurlegt þegar fólk fer aftur tilbaka og þá er bara að keyra sig áfram á fullu fram að jólafríi.
    Þá verður sko fjör hjá okkur hehehe hlakka svo til.
    Mér finnst frábært að þú setjir þér markmið því það hefur alltaf skilað árangri hjá þér
    og mun líka hjálpa þér mikið núna :o)
    Annars bara rífandi stolt af þér eins og venjulega litli minn - Sendi þér ótakmarkaða trú von og kærleik tilbaka LOVJÚ MA
    P.S. Hvet þá sem eru að skoða síðuna að setja inn smá komment - það gefur manni svo ótrúlega mikið þegar maður er svona langt í burtu - KOMA SVO !!!

    ReplyDelete
  2. Ákvað að henda inn smá commenti fyrir hana Mössu...

    En gaman að sjá hvað gengur vel, en ég er að verða seinn á æfingu (ekki í fyrsta sinn) þannig að þetta verður ekki lengra að sinni, verður betra næst.

    Þetta er samt orðið ágætlega langt hjá mér með öllum þessum afsökunum þannig að þetta er kannski bara ágætt.

    Kv. Svíinn

    ReplyDelete
  3. Sæll frændi. Ég les alltaf bloggið þitt og fylgist með. Er alveg að rifna af stolti yfir hversu vel þér gengur, bæði í handboltanum og vera einn í ókunnugu landi. Bara eitt að lokum - kallar þú þetta lítil markmið??? Hvernig eru þá þau stóru ;-) Gangi þér sem allra best í þessu ölllu saman. Kv. Hanna

    ReplyDelete
  4. Góðan og blessaðan
    Vonandi ganga þessi markmið upp hjá þér og vonandi fer að koma gott tan á þig, ég er farinn að hafa pínu áhyggjur af því. En að öðrum málum, maður er eiginlega farinn að sakna að horfa á fótbolta á 42" lg sjónvarpi, ég er að pæla að fara til ömmu þinnar og horfa á einn lfc leik með henni
    Rock on cowboy
    Kv. Gústi

    ReplyDelete
  5. sælirrrr

    mjög gaman að fylgjast með þér þarna í grikklandinu raggi. að venju ertu glæsilegur, það klikkar ekki. gangi þér vel með þetta allt saman.

    kv. pálmi

    ReplyDelete
  6. Haha mútta... þú ert náttúrulega alveg æðislega klikkuð ;)

    Kemur ekki á óvart að þú sért of seinn á æfingu Gunni... einn af þeim fáu sem sefur yfir sig á síðdegisæfingar! ;) Haltu áfram að sýna þessum svíum í tvo heimana.. fylgist vel með þér!

    Hæ Hanna mín, gaman að heyra frá þér! Flott að sjá að þið ættingjarnir eru duglegir við að skoða og fylgjast með. Það yljar manni um hjartarætur ;) Góðar kveðjur heim.

    Haha Gústi, þú ert ekki einn um að sakna 42" LG... það er alveg á hreinu! Ég er hræddur um að við verðum að taka það með norður um jólin til að komast í gírinn aftur. En já bankaðu bara upp á hjá gömlu... hún hefur bara gaman af því að fá þig í heimsókn... gefur þér pönnsur og sonna ;)

    Gaman að heyra frá þér Pálmi. Glæsilegur ertu sjálfur. Takk fyrir góða kveðju ;)

    ReplyDelete
  7. Hendi inn snöggri kveðju af klakanum á kallinn. Ánægður með frænda litla.

    ReplyDelete
  8. Hvernig er það Raggi. Ertu bara með jóa á gleðikonunum?

    Maður er búinn að lesa þennan póst 5-6 sinnum. Það þarf að krota eitthvð inn hérna. Svona til þess að láta daginn manns líða.

    Ísbjörn

    ReplyDelete
  9. Hehe já Kiddi ég hendi inn í kvöld eða á morgun... fer eftir hvernig ég verð stemmdur eftir leikinn í kvöld ;)
    en í kvöld eða á morgun er LOFORÐ!!

    ReplyDelete