Kali spera!
Dagurinn í dag er búinn að vera hreint út sagt magnaður. Fátt betra en að taka einn dag í góða afslöppun eftir erfiða törn. Veðrið seinustu daga er búið að vera mjög gott, á bilinu 28-34°, og dagurinn í dag var engin undantekning þar á. Við útlendingarnir í liðinu fórum á ströndina og höfðum það virkilega nice. Ég verð reyndar að viðurkenna að þetta var alltof heitt fyrir mig og ég eyddi mest öllum tímanum í sjónum, en það er ekki síður afslappandi. Nauðsynlegt að safna orku í frítímanum sem maður hefur og mæta endurnærður í næstu törn.
Í gær spiluðum við 3. leikinn í deildinni. Þetta skiptið á heimavelli gegn Argos og var þetta sjónvarpsleikur sem var sýndur um allt grikkland. Vegna þessa var leikurinn kl. 15 á heitasta tíma dagsins. Ég held að það hafi verið ca. 40° gráðu hiti inn í höllinni þegar leikurinn byrjaði og það er e-ð sem ég er ekki beint vanur. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og sterkum vörnum, enda mikilvægur fyrir bæði lið. Leikurinn var jafn á nánast öllum tölum í fyrri hálfleik og jafnt var í hálfleik 11-11. Eins og fyrri leikjunum tveim, þá byrjaði sóknarleikurinn okkar að hiksta aðeins í seinni hálfleik og þeir voru mest allan tímann 1-2 mörkum yfir. Við náðum hins vegar að hrista af okkur slenið og komumst aftur yfir þegar lítið var eftir af leiknum 21-20. Þeir ná að jafna leikinn með skítamarki úr horninu og við erum með boltann í stöðunni 21-21 og mínúta eftir. Við tökum langa og góða sókn og þegar 15 sek eru eftir þá fæ ég boltann hægra megin og kem mér upplagt færi og hamra boltanum í innanverða stöngina og þaðan í bakið á markmanninum, en á einhvern ótrúlegan hátt fer boltinn ekki inn og því enn eitt svekkjandi jafnteflið staðreynd. Hefði verið gaman að vera hetjan, en í þetta skiptið var þetta bara sentimetraspursmál og alveg á hreinu að þetta augnablik fer í reynslubankann.
Ég er alltaf að finna mig betur og betur og líkaminn alltaf að komast í betra stand eftir meiðslin í byrjun. Í þessum leik spilaði ég allan tímann og þjálfarinn hefur augljóslega gríðarlega mikla trú mér. Ég spila þrist varnarlega og vinstri og hægri skyttuna til skiptis sóknarlega. Mér gekk vel varnarlega eins og í fyrstu tveimur leikjunum og mér finnst ég alltaf vera að vaxa meira og meira sem varnarmaður og ég tel að gríska deildin sé mjög góður skóli fyrir mig. Sóknarlega er ég að komast meira inn í þetta og í þessum leik setti ég fjögur góð mörk. Ilin er ennþá aðeins að há mér, en er án efa að verða betri og ég held að þetta sé allt að koma. Það tekur tíma fyrir okkur stuðlana þrjá að slípa okkur saman, en ég er sannfærður um að það er allt á réttri leið og þegar það verður orðið gott þá verðum við illviðráðanlegir. Varnarlega erum við gríðarlega sterkir og haft hefur verið orð á því í dagblöðum að við séum með sterkustu vörnina í deildinni.
Það er mjög auðvelt að segja að við ættum að vera með 6 stig eftir 3 leiki og með smá heppni er það eflaust rétt. Hins vegar er ljósi punkturinn í þessu að allir virðast vera vinna alla í deildinni og þetta skiptir því vonandi ekki sköpum þegar uppi er staðið, því við eigum bara eftir að spila betur. Það hefur komið mér virkilega á óvart hvað þetta er sterkur bolti hérna niðurfrá og hér er mikið af leikmönnum sem kunna leikinn upp á 10.
Svo maður detti aðeins yfir í væmnu nóturnar, þá er ég gríðarlega ánægður með að hafa stigið þetta skref á þessum tíma. Það er einfaldlega vegna þess að ég hef í langan tíma verið að glíma við erfið meiðsli sem hafa háð mér og minni spilamennsku svo um munar. Ég hafði alltof lengi spilað af 50% krafti og ekki getað beitt mér að því leyti sem ég veit að ég get þegar allt er í lagi. Að mínu mati stóð ég á ákveðnum krossgötum, þ.e.a.s. annaðhvort var að hætta og fara að einbeita sér að öðru eða halda áfram að berjast og leggja ennþá meira á sig til að halda í drauminn. Ég tel mig hafa tekið rétta ákvörðun og öðlast virkilega stórt tækifæri sem ég ætla mér að nýta. Núna er maður farinn að kynnast því af hverju það er svona eftirsótt að vera atvinnumaður í íþróttum og af hverju maður hefur haldið í þennan draum svona lengi. Ef guð og lukka lofar þá er þetta vonandi bara fyrsta þrepið í þessum stiga sem ég sé fyrir mér. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að Grikkland er ekki sterkasta handboltaþjóð í heimi, en fyrir mér er þetta mjög góð byrjun og í raun framar björtustu vonum. Ég trúi því einfaldlega að ef þú gerir hvað sem þú mögulega getur til að stefna á næsta þrep í stiganum þá muntu á endanum komst upp hann allan og gott betur en það.
Næsti leikur er á Krít eftir 4 daga á móti Kydon Hanion og við förum einum degi fyrr. Nú er bara að vona að við komumst almennilega á skrið og hendum inn fyrsta sigrinum.
Núna keyrir maður meiri metnað í bloggin og aldrei að vita nema tækniundrið ég hendi inn myndum og jafnvel videoum í næstu færslu.
Manneskja vikunnar: Svala Fanney Njálsdóttir, fyrir að vera besta systir í heimi.
Heimasíða vikunnar: Sporttv.is, fyrir gera manni kleift að fylgjast með félögunum heima. Frábært framtak.
Einnig vil ég benda fólki á að meistarinn sjálfur, hann Einar Ingi Hrafnsson, er kominn með heimasíðu. Fólk verður seint svikið á að lesa gullmolana sem koma frá þeim manni. Sjá link hér til hliðar.
Hafið það sem allra best og kærar kveðjur heim...
Kv. Raggi
Your welcome.
ReplyDeleteKv. sportTV.is
Flott færsla hjá þér litli minn - Eins og ég hef alltaf sagt við þig og segi einu sinni enn
ReplyDeleteHaltu fast í trúna á sjálfan þig og draumana þína og þá eru þér allir vegir færir :o*
Ánægð með nýja liðinn á síðunni ;o)
Kossar og knús yfir hafið lovju Ma
Ég vil byrja á því að þakka þann mikla heiður sem mér er sýndur með því að vera valin fyrsta manneskja vikunnar!!! :o) Þú ert líka besti bróðir í heimi og ég er ótrúlega stolt af þér að fylgja draumum þínum. Þú mátt aldrei hætta því. Til hamingju memð síðasta leik, nú hljótið þið að klára þann næsta! Keep up the good work sjemli ;o)
ReplyDeleteÁst, friður og hamingja <3
-Svala systir
Sé ekki betur en að þú sért að plumma þig vel í nýja heimalandinu þínu, ekki skrítið því Grikkland er frábært land
ReplyDeleteknús á þig litli minn og hafðu það sem allra best. kem til með að sakna þín í partýinu í kvöld, það verða bara heitir réttir handa þér síðar
knús knús
fylgidaman hans HBB
ansans au....klára færið drengur.....en flott hjá þér samt sem áður. Gaman að (sjá) heyra að þú ert að finna þig betur og orðinn virkari í sóknarleiknum sem gerir þetta enn skemmtilegra..bíð enn eftir treyjunni..
ReplyDeletehilsen ÁP
Stoltur af þér elsku vinur, gaman að heyra að þér gangi vel úti!
ReplyDeleteEins og ég hef alltaf sagt, "You've got it!"
Haltu áfram að blogga eins og vindurinn, gott að geta fylgst með þér!
Gauti hlussi biður að heilsa!
elsku kallinn minn eg er svo stolt og með tárin í augunum eg veit að þér eru allir vegir færir elvar er að hjálpa mer anars gæti eg ekkert eg bið fyrir þér og sendi ástar kveðju amma nafna
ReplyDeleteTakk fyrir godar kvedjur :)
ReplyDeleteThank You and I have a dandy present: How Long Do House Renovations Take home addition remodeling
ReplyDelete