Friday, October 9, 2009

Annað grátlegt jafntefli, en allt að þokast í rétta átt

Sælt veri fólkið!

Ég hef ekki verið með netsamband núna í nokkurn tíma og það er ástæðan fyrir litlum skrifum! Er nefnilega fluttur í húsið og það er ekki ennþá komið net þar og hérna í Grikklandi virðist það taka ansi langan tíma!!

En allavega, við spiluðum leik númer 2 í deildinni síðastliðinn miðvikudag. Það var gegn Vrilissia á útivelli. Við fórum á þriðjudegi til Aþenu því að það tekur 8 tíma að fara þangað í rútu, virkilega hressandi það. Við átutm leikinn gjörsamlega framan af og vorum 6 mörkum yfir í hálfleik og 7 mörkum á tímabili í byrjun seinni hálfleiks og það stefndi allt í stórsigur hjá okkur. Svo eins og í leiknum á móti AEK þá fór allt í baklás síðustu 20 min og leikurinn endaði með jafntefli 25-25. Virkilega svekkjandi niðurstaða miðað við gang leiksins og hreint ótrúlegt að við skyldum glutra niður þessari forystu gegn lakara liði. Margt jákvætt má þó taka útúr þessum leik og við viljum meina að þetta sé allt að þokast í rétta átt hjá okkur. Sóknarleikurinn gekk mun betur en í fyrsta leiknum og við eurm farnir að þekkja betur inn á hvorn annan. Ég spilaði nánast allan tímann í miðri vörninni og hægra megin sóknarlega. Mér gekk mjög vel varnarlega eins og í fyrsta leiknum og svo er ég farinn að komast betur inn í þetta sóknarlega. Ég setti 2 mörk og átti nokkrar stoðsendingar og var að finna menn vel í kringum mig.

Næsti leikur er svo á morgun á heimavelli gegn Argos og verður hann sýndur í sjónvarpinu um allt Grikkland. Það er geysilega mikilvægt fyrir okkur að komast almennilega á skrið núna og taka þennan leik sannfærandi.

Annað í fréttum er að moskítóflugur virðast vera rosalega hrifnar af mér og þær láta mig ekki i friði. Finn ca. 5 ný bit á hverjum degi, það er ekkert eðlilega pirrandi!

Ég er kominn í húsið og það er svo miklu þægilegra heldur en að vera endalaust á hótelum. Það er aðeins útúr og lengst upp á hæð með virkilega fallegu útsýni yfir allt. Hendi inn myndum og jafnvel einu rándýru myndbandi bráðlega.

Hótelmanagerinn á hótelinu sem ég var síðast á var ekkert lítið geðveikur í hausnum og ég varð vitni að því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að hann gekk í skrokk á starfsfólkinu sínu og öskraði á það hástöfum. Þetta þykir bara nokkuð eðlilegt hér, yfirmenn eiga víst að sýna aga og sýna fólki hver það er sem ræður!!

Jæja, best að drífa sig á æfingu... síðasta æfing fyrir leik gegn Argos. Núna er bara að taka á því!!!

Hef vonandi meiri tíma eftir leikinn á morgun til að henda inn almennilegri færslu.....

Hafið það sem allra best og sendið góða strauma á morgun ;)

Kær kveðja,

Raggi

7 comments:

  1. Gangi þér vel, Ragnar.
    Ég sendi kærleiks-strauma.
    kv, Anna María

    ReplyDelete
  2. Saell gamli, vid lentum i thvi sama a midvikudaginn vorum ad spila a krit, vorum 7 morkum yfir i seinni halfleik en misstum thad nidur i jafntefli! Frekar surt!

    En heyrru lattu heyra i thera thegar thu ert ad koma keppa herna i Athenu, eg kem og kiki a thig ef thu ert med einhvern lausan tima...Nr. mitt er 6980627891

    Later...Joi

    ReplyDelete
  3. Þetta fer allt að smella saman hjá ykkur elskan
    Vonandi lætur vargurinn þig í friði en mjög eðlilegt samt af honum að vilja gott blóð hehe
    Gangi þér vel á morgun og reyndu að berja einhvern sigurvilja í þessa gaura þá kemur þetta hjá ykkur :o)
    Ástarkveðjur frá Ma og Pa

    ReplyDelete
  4. Gamli með tvær slummur, flottur! ;)
    Hló frekar mikið af þessu með hótelsjórann, þetta er frekar steikt! En jæja farðu nú að þrýsta á þetta net, vil fara að skype-a þig drengur.

    Eitt klassískt MÖÖÖÖAAAAAHHHHHHHHHHH (þú veist hvernig á að ber þetta fram)

    Essssar,
    Kv. Andri Snær

    ReplyDelete
  5. Það er eitt sem að þú ert greinilega ekki búinn að læra meistari. Það er hægt að borga sig út úr öllu þarna. Þegar að þeir tilkynntu mér að netið tæki að minnsta kosti 2 vikur spurði ég hvort að það væri ekki hægt að gera eitthvað í því. Gaurinn spurði mig hvað ég væri að meina og ég sagði honum að ég væri með 50 evrur í vasanum. Hann tók upp símann og bjallaði eitthvað. Lagði svo símtólið á og sagði að gaurinn kæmi í daginn eftir kl 08:00.

    Ísbjörn

    ReplyDelete
  6. Takk fyrir góðu straumana Anna María :)

    Já Jói, ég heyrði einmitt af því í gær. Þetta var ekkert eðlilega svekkjandi að missa þetta svona niður. Annar leikurinn í röð hjá okkur þar sem grísku gæjarnir halda að þeir séu einhverjir kóngar og slútta sókn eftir sókn ótímabærum skotum. Við létum þá heyra það eftir leik. En já gamli verðum í bandi, númerið mitt er: 6986984492

    Ma og Pa: ég fer að kaupa mér moskító netabúning ef þetta heldur svona áfram, haha.. og að sjálfsögðu ber ég þessa gæja áfram ;) ástarkveðjur til baka.

    Já Andri þetta er ekkert eðlilega steikt. Eins með flesta þjálfarana hérna, þeir hika ekki við að öskra á leikmenn sem þeir bera ekki virðingu fyrir og jafnvel að dangla aðeins í þá. Sem betur fer er þjálfarinn okkar skíthræddur við mig ;)

    Já Kiddi, ég var einmitt að heyra þetta. Það er alveg á hreinu að við förum í málið á morgun og látum græja þetta. Money talks ;)
    Vandamálið hjá okkur var samt að það var ekki einu sinni tengd símalína við húsið... kveðjur til Germany, stattu þig drengur.

    ReplyDelete
  7. Var bara að velta því fyrir mér hvaða skór myndu passa við nýja búninginn elskan hehehe
    Þetta fer allt að venjast eftir smá tíma verður þú orðinn eins og innfæddur albinói með tunguhaft keyrandi um á vespu með hjálm hahaha
    Sakna þín óþolandi mikið hehe
    lovja Ma

    ReplyDelete