Saturday, October 31, 2009

Fyrsta tapið staðreynd, en ég markahæstur 3. leikinn í röð!

Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og afsakið biðina!!

Síðasti leikur var á laugardaginn á móti Kilkis á heimavelli. Fyrirfram var búist við hörkuleik, enda um tvö jöfn lið að ræða. Lið sem geta bæði blandað sér í toppbaráttuna ef rétt er haldið á spilunum. Sú varð raunin, jafnt á nánast öllum tölum og mikil spenna. Jafnt var í hálfleik og enn þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Við gerum svo nokkur afdrifarík mistök sóknarlega, ásamt því sem okkar skapheiti þjálfari fékk 2 mín á crucial tímapunkti. Ég gæti svo talað vel og lengi um þátt dómaranna, en læt nægja að segja að þeir áttu ekki sinn besta dag og óhætt að segja að það hafi hallað ansi mikið á okkur. Leikurinn endar með hrikalega svekkjandi tveggja marka tapi og fyrsta tapið í deildinni því staðreynd. Ég átti ágætis leik og var markahæstur í okkar liði 3. leikinn í röð, með 7 mörk í þetta skiptið.




Talandi um markaskorun, þá er ég eins og stendur markahæsti maður liðsins í deildinni með 25 mörk eftir 5 leiki og 10. markahæsti maðurinn í deildinni. Það er ánægjulegt, þó svo að það sé ekki það sem mestu máli skiptir heldur gengi liðsins. Ég veit hins vegar að ég get gert enn betur og það er það sem ég ætla mér að gera. Markmiðasetning er hugtak sem ég er alltaf að tileinka mér betur og betur og það hjálpar mér gríðarlega mikið að setja sjálfum mér stighækkandi markmið fyrir ca. 1-2 mánuði í senn. Ég er búinn að setja mér 4 lítil markmið sem ég ætla mér að ná fyrir jólafrí. Ég ætla að sýna ykkur styttar útgáfur af þessum markmiðum hérna, svona aðeins til að útskýra hvernig ég hugsa hlutina og hvað það er sem ég geri til að reyna að bæta leik minn:

1. Verða enn betri varnarmaður. Bæta fótavinnu, tímasetningar og tækni við að brjóta á sóknarmönnum. Skoða einnig staðsetningar þegar bolti er ekki nálægt, til að mynda gagnvart línumanni til að auðvelda varnarvinnu mína og samspilara minna seinna meir.

2. Hugsa út fyrir rammann á hverri einustu æfingu. Hugsa fram í tímann í hverju atriði og reyna að sjá það sem aðrir sjá ekki og auka þannig sýn mína yfir völlinn og leikinn í heild sinni. Reyna sjá mismunandi vinkla á hlutunum og að kryfja hvert atriði niður í huganum og bæta þannig ákvörðunartöku. Alltaf að beita jákvæðu hugarfari og framkvæma hlutina með opnum huga.

3. Vera sífelld ógn sóknarlega. Bæta hreyfingu án bolta, tímasetningu hlaupa og minnka skref í aðhlaupi til að auka sprengju og auðvelda stefnubreytingar. Bæta skottækni enn meira og nota 20 mín eftir hverja æfingu til að æfa mismunandi týpur af skotum. Stefnan sett á að vera markahæsti maður míns liðs fyrir jól.

4. Vera eins professional og mögulegt er í mataræði og svefnvenjum. Aldrei að láta viðráðanlegar utanaðkomandi aðstæður hafa áhrif á frammistöðu mína inn á vellinum. Taka aukarækt alltaf þegar möguleiki er á og leikjaplan leyfir. Þar legg ég mjög mikla áherslu á lappir, maga og bak.

Þetta er svona ca. það sem ég var búinn að setja niður á blað og er þegar farinn að vinna á fullu í.

Næsti leikur er á útivelli gegn Edessa, en þeir eru búnir að styrkja sig talsvert frá síðustu leiktíð og eru sem stendur einu stigi á undan okkur í 4. sæti.

Annað í fréttum er að Ásta mín kom í heimsókn og var í 10 daga. Það var magnaður tími og við gerðum margt og mikið, m.a. verslunarferð til Thessaloniki og fullt fleira. Vonandi að hún komi oftar í heimsókn þessi elska, því þá er allt svo miklu auðveldara. En ef að fólk er áhugasamt um að koma út í heimsókn, þá er bara um að gera að heyra í mér og við græjum einhvern góðan pakka.


Ég og Ásta áttum 10 æðislega daga


Ég vil svo nota tækifærið og óska góðum vini mínum honum Heiðmari Guðmundssyni, innilega til hamingju með daginn!! ;)

Jæja, ég verð að þjóta! Hafið það sem allra best öllsömul og endilega skiljið eftir comment og ég svara um leið og ég get :)

Kær kv.
Raggi

Friday, October 23, 2009

Fyrsti sigurinn í höfn!!

Sælt veri fólkið!

Ég ætla að hafa þetta stutt í þetta skiptið þar sem að hún Ásta mín er í heimsókn og það þýðir ekkert að vera að eyða tíma á internetinu..... ;)

Um síðustu helgi fórum við til Krítar og spiluðum við Kydon Hanion, en þeir eru með ansi gott lið þetta tímabilið. Við vissum því að við ættum erfiðan leik fyrir höndum og þyrftum að spila okkar besta leik til að vinna. Eins og oft áður þá var mikið jafnræði með liðunum framan af leik og mikið um harðar varnir. Við náðum hins vegar að hrista þá af okkur fljótlega og vorum yfir í hálfleik. Við komumst síðan mest í 8 marka forystu í seinni hálfleik, en þeir náðu að minnka muninn niður í 2 mörk á tímabili. Þá sögðum við hingað og ekki lengra og jukum muninn aftur. Leikurinn endaði svo með gríðarlega sanngjörnum og mikilvægum 5 marka sigri, 29-34. Ég var að finna mig hrikalega vel í þessum leik og setti 10 slummur í öllum regnbogans litum!! Ekki leiðinlegt það...

Annars var þvílíkt gaman að koma til Krítar og get sagt með vissu að ég mun koma þangað aftur. Get ekki sagt annað en að það kitli svolítið að fara þangað í vikufrí eftir tímabilið. Endilega látið mig vita ef þið eruð game ;)

Næsti leikur er svo á morgun á heimavelli gegn Kilkis og það verður einnig mjög erfiður leikur, en liðin virðast vera mjög jöfn í deildinni í ár og allir eru að vinna alla.

Annað í fréttum er að Ásta er búin að vera hérna í nokkra daga og það er alger snilld. Við erum búin að vera dugleg við að skoða okkur um og fórum meðal annars í dagsferð til Thessaloniki á miðvikudaginn. Fórum í allar helstu búðirnar og Ásta var ekki í vandræðum með að finna sér föt ;)

Hendi inn góðu bloggi eftir leikinn og skelli inn fullt af ferskum myndum.


Manneskja vikunnar:
Gústaf Úlfarsson, fyrir að vera hreinræktaður snillingur sem alltaf er hægt að treysta á. Maður sem allir geta tekið sér til fyrirmyndar.


Hafið það gott kæra fólk.

#44

Sunday, October 11, 2009

Enn eitt jafnteflið

Kali spera!

Dagurinn í dag er búinn að vera hreint út sagt magnaður. Fátt betra en að taka einn dag í góða afslöppun eftir erfiða törn. Veðrið seinustu daga er búið að vera mjög gott, á bilinu 28-34°, og dagurinn í dag var engin undantekning þar á. Við útlendingarnir í liðinu fórum á ströndina og höfðum það virkilega nice. Ég verð reyndar að viðurkenna að þetta var alltof heitt fyrir mig og ég eyddi mest öllum tímanum í sjónum, en það er ekki síður afslappandi. Nauðsynlegt að safna orku í frítímanum sem maður hefur og mæta endurnærður í næstu törn.

Í gær spiluðum við 3. leikinn í deildinni. Þetta skiptið á heimavelli gegn Argos og var þetta sjónvarpsleikur sem var sýndur um allt grikkland. Vegna þessa var leikurinn kl. 15 á heitasta tíma dagsins. Ég held að það hafi verið ca. 40° gráðu hiti inn í höllinni þegar leikurinn byrjaði og það er e-ð sem ég er ekki beint vanur. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og sterkum vörnum, enda mikilvægur fyrir bæði lið. Leikurinn var jafn á nánast öllum tölum í fyrri hálfleik og jafnt var í hálfleik 11-11. Eins og fyrri leikjunum tveim, þá byrjaði sóknarleikurinn okkar að hiksta aðeins í seinni hálfleik og þeir voru mest allan tímann 1-2 mörkum yfir. Við náðum hins vegar að hrista af okkur slenið og komumst aftur yfir þegar lítið var eftir af leiknum 21-20. Þeir ná að jafna leikinn með skítamarki úr horninu og við erum með boltann í stöðunni 21-21 og mínúta eftir. Við tökum langa og góða sókn og þegar 15 sek eru eftir þá fæ ég boltann hægra megin og kem mér upplagt færi og hamra boltanum í innanverða stöngina og þaðan í bakið á markmanninum, en á einhvern ótrúlegan hátt fer boltinn ekki inn og því enn eitt svekkjandi jafnteflið staðreynd. Hefði verið gaman að vera hetjan, en í þetta skiptið var þetta bara sentimetraspursmál og alveg á hreinu að þetta augnablik fer í reynslubankann.

Ég er alltaf að finna mig betur og betur og líkaminn alltaf að komast í betra stand eftir meiðslin í byrjun. Í þessum leik spilaði ég allan tímann og þjálfarinn hefur augljóslega gríðarlega mikla trú mér. Ég spila þrist varnarlega og vinstri og hægri skyttuna til skiptis sóknarlega. Mér gekk vel varnarlega eins og í fyrstu tveimur leikjunum og mér finnst ég alltaf vera að vaxa meira og meira sem varnarmaður og ég tel að gríska deildin sé mjög góður skóli fyrir mig. Sóknarlega er ég að komast meira inn í þetta og í þessum leik setti ég fjögur góð mörk. Ilin er ennþá aðeins að há mér, en er án efa að verða betri og ég held að þetta sé allt að koma. Það tekur tíma fyrir okkur stuðlana þrjá að slípa okkur saman, en ég er sannfærður um að það er allt á réttri leið og þegar það verður orðið gott þá verðum við illviðráðanlegir. Varnarlega erum við gríðarlega sterkir og haft hefur verið orð á því í dagblöðum að við séum með sterkustu vörnina í deildinni.

Það er mjög auðvelt að segja að við ættum að vera með 6 stig eftir 3 leiki og með smá heppni er það eflaust rétt. Hins vegar er ljósi punkturinn í þessu að allir virðast vera vinna alla í deildinni og þetta skiptir því vonandi ekki sköpum þegar uppi er staðið, því við eigum bara eftir að spila betur. Það hefur komið mér virkilega á óvart hvað þetta er sterkur bolti hérna niðurfrá og hér er mikið af leikmönnum sem kunna leikinn upp á 10.

Svo maður detti aðeins yfir í væmnu nóturnar, þá er ég gríðarlega ánægður með að hafa stigið þetta skref á þessum tíma. Það er einfaldlega vegna þess að ég hef í langan tíma verið að glíma við erfið meiðsli sem hafa háð mér og minni spilamennsku svo um munar. Ég hafði alltof lengi spilað af 50% krafti og ekki getað beitt mér að því leyti sem ég veit að ég get þegar allt er í lagi. Að mínu mati stóð ég á ákveðnum krossgötum, þ.e.a.s. annaðhvort var að hætta og fara að einbeita sér að öðru eða halda áfram að berjast og leggja ennþá meira á sig til að halda í drauminn. Ég tel mig hafa tekið rétta ákvörðun og öðlast virkilega stórt tækifæri sem ég ætla mér að nýta. Núna er maður farinn að kynnast því af hverju það er svona eftirsótt að vera atvinnumaður í íþróttum og af hverju maður hefur haldið í þennan draum svona lengi. Ef guð og lukka lofar þá er þetta vonandi bara fyrsta þrepið í þessum stiga sem ég sé fyrir mér. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að Grikkland er ekki sterkasta handboltaþjóð í heimi, en fyrir mér er þetta mjög góð byrjun og í raun framar björtustu vonum. Ég trúi því einfaldlega að ef þú gerir hvað sem þú mögulega getur til að stefna á næsta þrep í stiganum þá muntu á endanum komst upp hann allan og gott betur en það.

Næsti leikur er á Krít eftir 4 daga á móti Kydon Hanion og við förum einum degi fyrr. Nú er bara að vona að við komumst almennilega á skrið og hendum inn fyrsta sigrinum.

Núna keyrir maður meiri metnað í bloggin og aldrei að vita nema tækniundrið ég hendi inn myndum og jafnvel videoum í næstu færslu.

Manneskja vikunnar: Svala Fanney Njálsdóttir, fyrir að vera besta systir í heimi.

Heimasíða vikunnar: Sporttv.is, fyrir gera manni kleift að fylgjast með félögunum heima. Frábært framtak.

Einnig vil ég benda fólki á að meistarinn sjálfur, hann Einar Ingi Hrafnsson, er kominn með heimasíðu. Fólk verður seint svikið á að lesa gullmolana sem koma frá þeim manni. Sjá link hér til hliðar.

Hafið það sem allra best og kærar kveðjur heim...

Kv. Raggi

Friday, October 9, 2009

Annað grátlegt jafntefli, en allt að þokast í rétta átt

Sælt veri fólkið!

Ég hef ekki verið með netsamband núna í nokkurn tíma og það er ástæðan fyrir litlum skrifum! Er nefnilega fluttur í húsið og það er ekki ennþá komið net þar og hérna í Grikklandi virðist það taka ansi langan tíma!!

En allavega, við spiluðum leik númer 2 í deildinni síðastliðinn miðvikudag. Það var gegn Vrilissia á útivelli. Við fórum á þriðjudegi til Aþenu því að það tekur 8 tíma að fara þangað í rútu, virkilega hressandi það. Við átutm leikinn gjörsamlega framan af og vorum 6 mörkum yfir í hálfleik og 7 mörkum á tímabili í byrjun seinni hálfleiks og það stefndi allt í stórsigur hjá okkur. Svo eins og í leiknum á móti AEK þá fór allt í baklás síðustu 20 min og leikurinn endaði með jafntefli 25-25. Virkilega svekkjandi niðurstaða miðað við gang leiksins og hreint ótrúlegt að við skyldum glutra niður þessari forystu gegn lakara liði. Margt jákvætt má þó taka útúr þessum leik og við viljum meina að þetta sé allt að þokast í rétta átt hjá okkur. Sóknarleikurinn gekk mun betur en í fyrsta leiknum og við eurm farnir að þekkja betur inn á hvorn annan. Ég spilaði nánast allan tímann í miðri vörninni og hægra megin sóknarlega. Mér gekk mjög vel varnarlega eins og í fyrsta leiknum og svo er ég farinn að komast betur inn í þetta sóknarlega. Ég setti 2 mörk og átti nokkrar stoðsendingar og var að finna menn vel í kringum mig.

Næsti leikur er svo á morgun á heimavelli gegn Argos og verður hann sýndur í sjónvarpinu um allt Grikkland. Það er geysilega mikilvægt fyrir okkur að komast almennilega á skrið núna og taka þennan leik sannfærandi.

Annað í fréttum er að moskítóflugur virðast vera rosalega hrifnar af mér og þær láta mig ekki i friði. Finn ca. 5 ný bit á hverjum degi, það er ekkert eðlilega pirrandi!

Ég er kominn í húsið og það er svo miklu þægilegra heldur en að vera endalaust á hótelum. Það er aðeins útúr og lengst upp á hæð með virkilega fallegu útsýni yfir allt. Hendi inn myndum og jafnvel einu rándýru myndbandi bráðlega.

Hótelmanagerinn á hótelinu sem ég var síðast á var ekkert lítið geðveikur í hausnum og ég varð vitni að því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að hann gekk í skrokk á starfsfólkinu sínu og öskraði á það hástöfum. Þetta þykir bara nokkuð eðlilegt hér, yfirmenn eiga víst að sýna aga og sýna fólki hver það er sem ræður!!

Jæja, best að drífa sig á æfingu... síðasta æfing fyrir leik gegn Argos. Núna er bara að taka á því!!!

Hef vonandi meiri tíma eftir leikinn á morgun til að henda inn almennilegri færslu.....

Hafið það sem allra best og sendið góða strauma á morgun ;)

Kær kveðja,

Raggi