Friday, September 18, 2009

Reykingar, þrumuveður og grískir siðir

Júúú komiði sæl og blessuð....

Where to start, where to start.......?

Reykingar.... það er náttúrulega eitthvað djók! Hérna reykja allir... það er ótrúlegt. Sama hvar þeir eru, hvað þeir eru að gera, sama hvenær sólarhringsins, sama hvað þeir eru gamlir.... skiptir ekki máli. Átti ennþá eftir að segja frá því þegar ég var sóttur á flugvöllinn fyrir 10 dögum síðan... ég labba inn í komusalinn á flugvellinum í Thessaloniki og þar taka á móti mér 3 karlmenn.. presidentinn og 2 menn í stjórn félagsins.. þeir halda allir á sígarettupakka og kveikjara. Við spjöllum svo saman í smástund áður en við förum í bílinn og um leið og við setjumst uppí þá kveikja þeir sér allir í rettu.. og svo var bara reykjarmökkur inní bílnum þessar 20-30 mín sem það tók að keyra til Perea... svona er þetta allsstaðar hérna.. haha ekki alveg það sem maður hefur vanist.

Yfir í annað...! Við vorum á æfingu áðan... það er kannski ekki frá sögu færandi nema fyrir það að það var búið að vera geggjað veður í allan dag, 30-35 gráður. svo þegar æfingin er ca. hálfnuð þá fer rafmagnið snögglega af öllu íþróttahúsinu og maður heyrir þessar líka svakalegu þrumur... ég ásamt nokkrum öðrum stökkvum útúr íþróttasalnum og útí andyri.... sjiiiiiit ég hef aldrei séð aðra eins rigningu og rok!!!! veðrið breyttist sem sagt á nokkrum sekúndubrotum úr 32 gráðum og algeru logni í mestu rigningu sem ég hef á ævinni séð, þvílíkt rok og massífar þrumur og eldingar... mjög svo sérstök sjón! svo u.þ.b. hálftíma síðar var allt orðið gott aftur, rafmagn komið á húsið og menn héldu áfram eins og ekkert hefði í skorist....

Hvað er meira í þessu... jú hérna er rosalegur áhugi á fótbolta og körfubolta og það skiptir varla máli hvaða sjónvarpsstöð þú stillir á... það eru 90% líkur á að það sé annað hvort verið að sýna fótbolta eða körfubolta... líka alltaf endalaust af fólki að horfa á þetta á kaffihúsum og já bara basicly allstaðar þar sem hægt er að koma sjónvörpum fyrir... maður finnur líka fyrir því að áhugi fyrir handbolta fer gríðarlega vaxandi hér í landi og maður er oft stoppaður og spurður út í handboltann... hérna er þetta tiltölulega lítið samfélag þar sem flestir virðast þekkja flesta og maður finnur að það er vel fylgst með okkur....

Af liðinu er það að frétta að það er von á 3 leikmönnum í viðbót á allranæstu dögum sem eru að sinna herskyldu... þar af er einn orvhentur hornamaður sem er virkilega góður leikmaður... hann fékk 10 daga refsingu um daginn fyrir að taka myndir á símann sinn... það er víst stranglega bannað á meðan herskyldu er gegnt... jááá ekkert steikt það! þjálfarinn er ekkert farinn að slaka á hlaupunum.. þannig að menn eru orðnir ansi þreyttir! en það verður bara að bíða og sjá hvort þessi taktík skili tilætluðum árangri á endanum.

Man ekki meira í bili....

Núna fer maður að skella inn einhverjum skemmtilegum bloggum sem verða reglulega hér eftir.... eins og t.d. maður vikunnar o.fl.

Hafið það sem allra best og verið nú dugleg við að henda commentum á kallinn!!

ÁST, FRIÐUR OG EINTÓM HAMINGJA

13 comments:

  1. Haha snillingar þessir Grikkir
    Gangi þér vel elskan mín og varaðu þig á óbeinu reykingunum og þrumunum hahaha
    Lov U

    ReplyDelete
  2. Grikkir eru líka komnir í undanúrslit á EM í körfu, þeim hefur væntanlega ekki leiðst að vinna Tyrki í 8 liða úrslitum með tveimur stigum.

    Grikkir eiga líka einhvern svalasta körfuboltamann í öllum heiminum, Sofoklis Schortsianitis a.k.a. Baby Shaq. 208cm og 150kg.
    http://www.interbasket.net/players/sofo.jpg
    Tékkaðu á þessum gaur.

    Kveðja Posemaster Pjé

    ReplyDelete
  3. Þegar ég var þarna þá kom mútta í heimsók og velti því hreinlega fyrir sér hvort að það væri skilda að reykja í landinu. Er ekki frá því að það sé rétt. Er að velta einu fyrir mér. hvaða dani og svíi eru í liðinu hjá þér? nöfn takk.

    ReplyDelete
  4. Elsku Ragnar,
    Gangi þér vel áfram með hinum Grikkjunum.
    Knús og kærleikur, Anna María og Ási

    ReplyDelete
  5. Hehe lovjú 2 Massie! ;)

    Já nákvæmlega Pose... það er líka allt að verða vitlaust hérna útaf körfunni... er á internet cafe núna og staðurinn er um það bil að fyllast.. styttist í semi-finals! En djöfull er Baby Shaq flottur!! Haha hann er ekkert smá vígalegur...

    Já Kiddi þetta með reykingarnar er bara rugl... þeir hafa líka ekkert sens fyrir því að það sé fólk í kringum þá þegar þeir reykja.. m.a.s. inná veitingastöðum! En hey Kiddi hvernig býr maður til tengla inná aðrar síður?? ..og já svíinn heitir Damir Pastuhovich og daninn heitir Joachim Christensen.. mjög góðir leikmenn!

    Takk fyrir kveðjuna Anna María og Ási, hafið það líka sem allra best :)

    ReplyDelete
  6. Jæja hnoðmaskína, þú ert formlega skráður sem partur af mínum "internet-hring" og þá fær mamma þín og systir aðeins meiri frið frá mér ;)

    Virkilega gaman að heyra að allt er að ganga vel hjá þér... á ekkert að koma sér upp myndasafni ? ;)

    Ætla að skella lottó í áskrift, mæti ÞEGAR vinningurinn mætir í hús ;)

    ReplyDelete
  7. bjallaðu á mig á skype kiddi81 og ég skal leiða þig í gegnum þetta

    Ísbjörn

    ReplyDelete
  8. Hrikalega ánægður með bloggið! Það veitti ekki af nýrri síðu á netrúntinn.

    Fer að græja skype-ið svo ég geti heyrt almennilega í þér ;)

    Árni

    ReplyDelete
  9. Haha flott ad heyra Biggi... ju madur verdur duglegur vid ad henda inn myndum og videoum a facebook og svona ;) eg treysti a thu takir svo vinning bradlega og latir sja thig ;)

    Eg er buinn ad fatta thetta Kiddi... hendi inn adressunni thinni a Skype og vid verdum i bandi vid taekifaeri! ooog til hamingju med daginn!!! ;)

    Ja verdur ad gera thad Arni... tokum almennilega video conferences i vetur og raedum thjodmalin til hins itrasta.. haha! Heyrumst kallinn minn.

    ReplyDelete
  10. Blessaður Ragnar minn,

    gaman að fylgjast með þér, skandall að maður sé ekki sjálfur með blogg.

    Hvernig er skrokkurinn annars, þú hefur nú ekki beint verið í standi fyrir maraþonhlaup síðustu misseri.

    Annars gott að þú sért á góðu róli og vona að þú standir þig þarna!

    ciao

    Keðja, Rúnar Kára

    ReplyDelete
  11. Já gaman að heyra frá þér Rúnar... ég var einmitt að segja við Einsa að hann verði að byrja með blogg líka og hann er heitur fyrir því veit ég... nú startar þú þínu líka og við verðum með alvöru blogghring ;)

    Skrokkurinn heldur og maður vonar bara að hann geri það áfram... held að hitinn sé að gera mér mjög gott. Svo er maður bara duglegur að taka hrikalega á því í Gymminu líka, þannig að það er bara í toppmálum.

    Er ekki allt gott að frétta frá Germany??... sé að þú ert strax byrjaðir að raða inn mörkum.. ánægður með þig! ;)

    ReplyDelete
  12. Ánægður með þetta!
    Mun fylgjast betur með þessari síðu en hraðri aukningu á skeggvexti mínum!


    Ást
    Egill

    ReplyDelete
  13. Haha það er gott að heyra elskulegur! :D

    Ást til baka!

    ReplyDelete