Friday, November 27, 2009

Styttist í heimkomu :)

Sælt veri fólkið!

Verð að opna þessa færslu á agalega góðu lagi sem er á repeat hjá mér þessa dagana:

http://www.youtube.com/watch?v=Wd0Y1Sko7hA

Héðan er bara nokkuð gott að frétta og menn eru í ferskari kantinum. Í fréttum er helst að við spiluðum síðastliðna helgi við topplið Zafeirakis á heimavelli þeirra. Þessi leikur var jafn á nánast öllum tölum frá byrjun til enda og endaði með grátlegu eins marks tapi, 30-29. Það var virkilega mikil stemmning á leiknum og áðdáendur Zafeirakis eiga hrós skilið fyrir flottan stuðning. Alltaf gaman að spila svona leiki þar sem maður heyrir ekki í sjálfum sér fyrir hávaða. Sama hvort það er á heima- eða útivelli. Ég fékk tækifæri þegar það voru 2 sek til leiksloka að jafna... fékk boltann fyrir utan og hamraði á markið en setti hann í utanverða stöngina... virkilega svekkjandi! En svona er þetta stundum, stöngin inn - stöngin út... þetta er bara svoleiðis sport. Annars gekk mér bara vel í leiknum, setti 4 góð mörk, fann aðra vel og stóð vörnina með miklum sóma.

Næsti leikur er á morgun en það er sjónvarpsleikur gegn Filippos Veroias... þeir eru með hörkulið og mikla sögu á bak við sig. Menn tala um að þetta sé frægasta nafnið héðan frá Grikklandi, en fyrir nokkrum árum síðan voru þeir að gera góða hluti heima og í Evrópukeppnunum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá 2 stig út úr þessum leik á morgun til að laga stöðu okkar í deildinni aðeins, en stigin hafa ekki verið að detta inn hjá okkur eftir að danski markmaðurinn meiddist. Það hefur verið hrikalegur missir, því hann er solid 20-25 bolta maður í hverjum leik og vinnur virkilega vel með okkur í 6-0 vörninni. Góðu fréttirnar eru þær að hann mun spila á morgun, þannig að ég hef enga trú á öðru en að við komumst aftur á sigurbraut.

Meira í þessu... búið er að draga í 16 liða úrslit í Evrópukeppninni. Fengum Sporting Club Lissabon sem er mjög skemmtilegur og krefjandi dráttur og það verður nú örugglega ekkert leiðinlegt að skella sér til Portúgals.

Svo er maður búinn að panta sér flugmiða heim fyrir jólin!!! Ég lendi á klakanum þann 20. des um kvöldið og keyri norður til Akureyrar með henni Ástu minni morguninn eftir. Get eiginlega ekki lýst því hvað manni hlakkar til að komast heim í smá frí og hitta allt fólkið sitt! ;)

Svo vil ég enda þetta á einu stutti vidjói í tilefni þess að það styttist í grannaslaginn PAOK-Thermaikos... DJÖFULL verður það skemmtilegt!! ;)

http://www.youtube.com/watch?v=YlhXapbZhcM

Hafið það sem allra best snillingar!!

Njálsson kveður að sinni... :)

Monday, November 16, 2009

Margt búið að gerast......

Ég veit aldrei hvernig ég á að opna bloggfærslurnar mínar... persónulega finnst mér ég verða gera það á töluvert hressari hátt en hingað til.... "jú komið þið sæl og blessuð" er orðið frekar þreytt er það ekki?? Komið endilega með einhverjar ábendingar... sigurvegarinn fær að launum vegleg verðlaun seinna meir.......! ;)

Halló allir... hvítir sem svartir sem gulir sem gráir!

Hér er ætlunin að henda inn einu örstuttu bloggi, þar sem að ég er gjörsamlega búinn að skíta upp á bak í bloggskrifum mínum hingað til.... en óhætt er að segja að félagi minn hann RK Berlín hafi komist vel að orði þegar hann sagði að ég væri í tuddaformi inn á vellinum, en hrikalega slöku bloggformi! Ætlunin er að bæta úr þessu og fara að hysja upp um sig brækurnar... ég er líka með þá hugmynd í kollinum að skrifa mun tíðar og mun styttra í einu ( svona nettur twitter fílingur)... er fólk að taka vel í það?? Eða er það kannski frekar ópersónulegt? You tell me......

En já... það er óhætt að segja að margt hafi gerst síðan ég henti inn færslu síðast! Menn eru ekki beint að deyja úr stressi hérna í Grikklandinu og eins ég var áður búinn að koma inn á þá eru þessi kvikindi latari en allt.. og ekki sjaldgæft að maður þurfi að segja sama hlutinn við fólk aftur og aftur til að fá hann framkvæmdan! Það er líka svolítið þannig hjá gæjunum í kringum klúbbinn.. þeir eru svolítið stórir í kjaftinum... en eiga erfiðara með að framkvæma það sem þeir segja... einfaldir hlutir eins og að fá internet í heimahúsið.... hita á húsið ( já HITA, það er byrjað að kólna aðeins) og annað slíkt. Einnig er það bara eðlilegt fyrir þeim að borga manni 2-3 vikum of seint.... en hey! svona er andrúmsloftið hérna bara... menn eru ansi hreint slakir á því og hægt að sjá bæði jákvæða og neikvæða hluti við það.

En yfir í það næsta... við erum búnir að spila nokkra leiki síðan síðast og ber þar hæst að nefna síðustu þrjá... spiluðum í síðustu viku við Jóa og félaga í Panellinios og er óhætt að segja að við höfum spilað illa í þeim leik... þeir tóku okkur í kennslu í handboltafræðum og unnu nokkuð auðveldan sigur á okkur.... ég meiddist frekar snemma leiks og þurfti að fara útaf! fór úr lið á putta og brákaðist.... en það er allt að koma til núna. Jói stóð sig hins vegar vel og var ekki leiðinlegt að hitta kallinn loksins... hrikalega gott að geta talað aðeins íslensku og slakað á með fellow icelander! Ég held ég geti líka fullyrt að við höfum vera að skrifa part af sögubókunum með þessum leik... klárlega í fyrsti skipti þar sem íslendingar mætast í grísku deildinni!! vúhú...

Núna um helgina voru svo leikir í 3. umferð Evrópukeppninnar á móti sterku liði RK Berrane frá Serbíu... þetta er í 3. skipti sem ég er svo heppinn að fá það tækifæri að taka þátt í Evrópukeppni með mínu liði... alltaf skemmtileg tilfinning! Meira undir einhvern veginn og mikill heiður að spila gegn sterkum liðum... Hef spilað áður með KA og HK í þessum keppnum.
Allavega, það er óhætt að segja að mér hafi gengið hrikalega vel í þessum leikjum og vakið mikla athygli. Í fyrri leiknum á laugardaginn fór ég fyrir mínu liði og það gekk einhvern veginn allt fullkomlega upp sem ég gerði... mér leið frábærlega inn á vellinum og greinilegt að aukaæfingarnar eru að skila sér... ræktin, skotin og hugsunin... allt sem ég talaði um í síðustu færslu. Ég setti 14 mörk ú 15 skotum í þessum leik og aðeins 3 þeirra úr vítum... einnig átti ég nokkrar góðar stoðsendingar og spilaði í hjarta varnarinnar. Hrikalega gaman að sýna hvað maður getur á þessu leveli og hef ég fengið mikla athygli frá grískum fjölmiðlum eftir þennan leik... og mér finnst það heldur ekkert leiðinlegt... hehe

Ég hins vegar VERÐ að fara núna....
lofa að klára framhaldið á morgun!!! Bíðið spennt

Hafið það sem allra best,

Riiisastór kveðja,

Raggi

Saturday, October 31, 2009

Fyrsta tapið staðreynd, en ég markahæstur 3. leikinn í röð!

Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og afsakið biðina!!

Síðasti leikur var á laugardaginn á móti Kilkis á heimavelli. Fyrirfram var búist við hörkuleik, enda um tvö jöfn lið að ræða. Lið sem geta bæði blandað sér í toppbaráttuna ef rétt er haldið á spilunum. Sú varð raunin, jafnt á nánast öllum tölum og mikil spenna. Jafnt var í hálfleik og enn þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Við gerum svo nokkur afdrifarík mistök sóknarlega, ásamt því sem okkar skapheiti þjálfari fékk 2 mín á crucial tímapunkti. Ég gæti svo talað vel og lengi um þátt dómaranna, en læt nægja að segja að þeir áttu ekki sinn besta dag og óhætt að segja að það hafi hallað ansi mikið á okkur. Leikurinn endar með hrikalega svekkjandi tveggja marka tapi og fyrsta tapið í deildinni því staðreynd. Ég átti ágætis leik og var markahæstur í okkar liði 3. leikinn í röð, með 7 mörk í þetta skiptið.




Talandi um markaskorun, þá er ég eins og stendur markahæsti maður liðsins í deildinni með 25 mörk eftir 5 leiki og 10. markahæsti maðurinn í deildinni. Það er ánægjulegt, þó svo að það sé ekki það sem mestu máli skiptir heldur gengi liðsins. Ég veit hins vegar að ég get gert enn betur og það er það sem ég ætla mér að gera. Markmiðasetning er hugtak sem ég er alltaf að tileinka mér betur og betur og það hjálpar mér gríðarlega mikið að setja sjálfum mér stighækkandi markmið fyrir ca. 1-2 mánuði í senn. Ég er búinn að setja mér 4 lítil markmið sem ég ætla mér að ná fyrir jólafrí. Ég ætla að sýna ykkur styttar útgáfur af þessum markmiðum hérna, svona aðeins til að útskýra hvernig ég hugsa hlutina og hvað það er sem ég geri til að reyna að bæta leik minn:

1. Verða enn betri varnarmaður. Bæta fótavinnu, tímasetningar og tækni við að brjóta á sóknarmönnum. Skoða einnig staðsetningar þegar bolti er ekki nálægt, til að mynda gagnvart línumanni til að auðvelda varnarvinnu mína og samspilara minna seinna meir.

2. Hugsa út fyrir rammann á hverri einustu æfingu. Hugsa fram í tímann í hverju atriði og reyna að sjá það sem aðrir sjá ekki og auka þannig sýn mína yfir völlinn og leikinn í heild sinni. Reyna sjá mismunandi vinkla á hlutunum og að kryfja hvert atriði niður í huganum og bæta þannig ákvörðunartöku. Alltaf að beita jákvæðu hugarfari og framkvæma hlutina með opnum huga.

3. Vera sífelld ógn sóknarlega. Bæta hreyfingu án bolta, tímasetningu hlaupa og minnka skref í aðhlaupi til að auka sprengju og auðvelda stefnubreytingar. Bæta skottækni enn meira og nota 20 mín eftir hverja æfingu til að æfa mismunandi týpur af skotum. Stefnan sett á að vera markahæsti maður míns liðs fyrir jól.

4. Vera eins professional og mögulegt er í mataræði og svefnvenjum. Aldrei að láta viðráðanlegar utanaðkomandi aðstæður hafa áhrif á frammistöðu mína inn á vellinum. Taka aukarækt alltaf þegar möguleiki er á og leikjaplan leyfir. Þar legg ég mjög mikla áherslu á lappir, maga og bak.

Þetta er svona ca. það sem ég var búinn að setja niður á blað og er þegar farinn að vinna á fullu í.

Næsti leikur er á útivelli gegn Edessa, en þeir eru búnir að styrkja sig talsvert frá síðustu leiktíð og eru sem stendur einu stigi á undan okkur í 4. sæti.

Annað í fréttum er að Ásta mín kom í heimsókn og var í 10 daga. Það var magnaður tími og við gerðum margt og mikið, m.a. verslunarferð til Thessaloniki og fullt fleira. Vonandi að hún komi oftar í heimsókn þessi elska, því þá er allt svo miklu auðveldara. En ef að fólk er áhugasamt um að koma út í heimsókn, þá er bara um að gera að heyra í mér og við græjum einhvern góðan pakka.


Ég og Ásta áttum 10 æðislega daga


Ég vil svo nota tækifærið og óska góðum vini mínum honum Heiðmari Guðmundssyni, innilega til hamingju með daginn!! ;)

Jæja, ég verð að þjóta! Hafið það sem allra best öllsömul og endilega skiljið eftir comment og ég svara um leið og ég get :)

Kær kv.
Raggi

Friday, October 23, 2009

Fyrsti sigurinn í höfn!!

Sælt veri fólkið!

Ég ætla að hafa þetta stutt í þetta skiptið þar sem að hún Ásta mín er í heimsókn og það þýðir ekkert að vera að eyða tíma á internetinu..... ;)

Um síðustu helgi fórum við til Krítar og spiluðum við Kydon Hanion, en þeir eru með ansi gott lið þetta tímabilið. Við vissum því að við ættum erfiðan leik fyrir höndum og þyrftum að spila okkar besta leik til að vinna. Eins og oft áður þá var mikið jafnræði með liðunum framan af leik og mikið um harðar varnir. Við náðum hins vegar að hrista þá af okkur fljótlega og vorum yfir í hálfleik. Við komumst síðan mest í 8 marka forystu í seinni hálfleik, en þeir náðu að minnka muninn niður í 2 mörk á tímabili. Þá sögðum við hingað og ekki lengra og jukum muninn aftur. Leikurinn endaði svo með gríðarlega sanngjörnum og mikilvægum 5 marka sigri, 29-34. Ég var að finna mig hrikalega vel í þessum leik og setti 10 slummur í öllum regnbogans litum!! Ekki leiðinlegt það...

Annars var þvílíkt gaman að koma til Krítar og get sagt með vissu að ég mun koma þangað aftur. Get ekki sagt annað en að það kitli svolítið að fara þangað í vikufrí eftir tímabilið. Endilega látið mig vita ef þið eruð game ;)

Næsti leikur er svo á morgun á heimavelli gegn Kilkis og það verður einnig mjög erfiður leikur, en liðin virðast vera mjög jöfn í deildinni í ár og allir eru að vinna alla.

Annað í fréttum er að Ásta er búin að vera hérna í nokkra daga og það er alger snilld. Við erum búin að vera dugleg við að skoða okkur um og fórum meðal annars í dagsferð til Thessaloniki á miðvikudaginn. Fórum í allar helstu búðirnar og Ásta var ekki í vandræðum með að finna sér föt ;)

Hendi inn góðu bloggi eftir leikinn og skelli inn fullt af ferskum myndum.


Manneskja vikunnar:
Gústaf Úlfarsson, fyrir að vera hreinræktaður snillingur sem alltaf er hægt að treysta á. Maður sem allir geta tekið sér til fyrirmyndar.


Hafið það gott kæra fólk.

#44

Sunday, October 11, 2009

Enn eitt jafnteflið

Kali spera!

Dagurinn í dag er búinn að vera hreint út sagt magnaður. Fátt betra en að taka einn dag í góða afslöppun eftir erfiða törn. Veðrið seinustu daga er búið að vera mjög gott, á bilinu 28-34°, og dagurinn í dag var engin undantekning þar á. Við útlendingarnir í liðinu fórum á ströndina og höfðum það virkilega nice. Ég verð reyndar að viðurkenna að þetta var alltof heitt fyrir mig og ég eyddi mest öllum tímanum í sjónum, en það er ekki síður afslappandi. Nauðsynlegt að safna orku í frítímanum sem maður hefur og mæta endurnærður í næstu törn.

Í gær spiluðum við 3. leikinn í deildinni. Þetta skiptið á heimavelli gegn Argos og var þetta sjónvarpsleikur sem var sýndur um allt grikkland. Vegna þessa var leikurinn kl. 15 á heitasta tíma dagsins. Ég held að það hafi verið ca. 40° gráðu hiti inn í höllinni þegar leikurinn byrjaði og það er e-ð sem ég er ekki beint vanur. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og sterkum vörnum, enda mikilvægur fyrir bæði lið. Leikurinn var jafn á nánast öllum tölum í fyrri hálfleik og jafnt var í hálfleik 11-11. Eins og fyrri leikjunum tveim, þá byrjaði sóknarleikurinn okkar að hiksta aðeins í seinni hálfleik og þeir voru mest allan tímann 1-2 mörkum yfir. Við náðum hins vegar að hrista af okkur slenið og komumst aftur yfir þegar lítið var eftir af leiknum 21-20. Þeir ná að jafna leikinn með skítamarki úr horninu og við erum með boltann í stöðunni 21-21 og mínúta eftir. Við tökum langa og góða sókn og þegar 15 sek eru eftir þá fæ ég boltann hægra megin og kem mér upplagt færi og hamra boltanum í innanverða stöngina og þaðan í bakið á markmanninum, en á einhvern ótrúlegan hátt fer boltinn ekki inn og því enn eitt svekkjandi jafnteflið staðreynd. Hefði verið gaman að vera hetjan, en í þetta skiptið var þetta bara sentimetraspursmál og alveg á hreinu að þetta augnablik fer í reynslubankann.

Ég er alltaf að finna mig betur og betur og líkaminn alltaf að komast í betra stand eftir meiðslin í byrjun. Í þessum leik spilaði ég allan tímann og þjálfarinn hefur augljóslega gríðarlega mikla trú mér. Ég spila þrist varnarlega og vinstri og hægri skyttuna til skiptis sóknarlega. Mér gekk vel varnarlega eins og í fyrstu tveimur leikjunum og mér finnst ég alltaf vera að vaxa meira og meira sem varnarmaður og ég tel að gríska deildin sé mjög góður skóli fyrir mig. Sóknarlega er ég að komast meira inn í þetta og í þessum leik setti ég fjögur góð mörk. Ilin er ennþá aðeins að há mér, en er án efa að verða betri og ég held að þetta sé allt að koma. Það tekur tíma fyrir okkur stuðlana þrjá að slípa okkur saman, en ég er sannfærður um að það er allt á réttri leið og þegar það verður orðið gott þá verðum við illviðráðanlegir. Varnarlega erum við gríðarlega sterkir og haft hefur verið orð á því í dagblöðum að við séum með sterkustu vörnina í deildinni.

Það er mjög auðvelt að segja að við ættum að vera með 6 stig eftir 3 leiki og með smá heppni er það eflaust rétt. Hins vegar er ljósi punkturinn í þessu að allir virðast vera vinna alla í deildinni og þetta skiptir því vonandi ekki sköpum þegar uppi er staðið, því við eigum bara eftir að spila betur. Það hefur komið mér virkilega á óvart hvað þetta er sterkur bolti hérna niðurfrá og hér er mikið af leikmönnum sem kunna leikinn upp á 10.

Svo maður detti aðeins yfir í væmnu nóturnar, þá er ég gríðarlega ánægður með að hafa stigið þetta skref á þessum tíma. Það er einfaldlega vegna þess að ég hef í langan tíma verið að glíma við erfið meiðsli sem hafa háð mér og minni spilamennsku svo um munar. Ég hafði alltof lengi spilað af 50% krafti og ekki getað beitt mér að því leyti sem ég veit að ég get þegar allt er í lagi. Að mínu mati stóð ég á ákveðnum krossgötum, þ.e.a.s. annaðhvort var að hætta og fara að einbeita sér að öðru eða halda áfram að berjast og leggja ennþá meira á sig til að halda í drauminn. Ég tel mig hafa tekið rétta ákvörðun og öðlast virkilega stórt tækifæri sem ég ætla mér að nýta. Núna er maður farinn að kynnast því af hverju það er svona eftirsótt að vera atvinnumaður í íþróttum og af hverju maður hefur haldið í þennan draum svona lengi. Ef guð og lukka lofar þá er þetta vonandi bara fyrsta þrepið í þessum stiga sem ég sé fyrir mér. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að Grikkland er ekki sterkasta handboltaþjóð í heimi, en fyrir mér er þetta mjög góð byrjun og í raun framar björtustu vonum. Ég trúi því einfaldlega að ef þú gerir hvað sem þú mögulega getur til að stefna á næsta þrep í stiganum þá muntu á endanum komst upp hann allan og gott betur en það.

Næsti leikur er á Krít eftir 4 daga á móti Kydon Hanion og við förum einum degi fyrr. Nú er bara að vona að við komumst almennilega á skrið og hendum inn fyrsta sigrinum.

Núna keyrir maður meiri metnað í bloggin og aldrei að vita nema tækniundrið ég hendi inn myndum og jafnvel videoum í næstu færslu.

Manneskja vikunnar: Svala Fanney Njálsdóttir, fyrir að vera besta systir í heimi.

Heimasíða vikunnar: Sporttv.is, fyrir gera manni kleift að fylgjast með félögunum heima. Frábært framtak.

Einnig vil ég benda fólki á að meistarinn sjálfur, hann Einar Ingi Hrafnsson, er kominn með heimasíðu. Fólk verður seint svikið á að lesa gullmolana sem koma frá þeim manni. Sjá link hér til hliðar.

Hafið það sem allra best og kærar kveðjur heim...

Kv. Raggi

Friday, October 9, 2009

Annað grátlegt jafntefli, en allt að þokast í rétta átt

Sælt veri fólkið!

Ég hef ekki verið með netsamband núna í nokkurn tíma og það er ástæðan fyrir litlum skrifum! Er nefnilega fluttur í húsið og það er ekki ennþá komið net þar og hérna í Grikklandi virðist það taka ansi langan tíma!!

En allavega, við spiluðum leik númer 2 í deildinni síðastliðinn miðvikudag. Það var gegn Vrilissia á útivelli. Við fórum á þriðjudegi til Aþenu því að það tekur 8 tíma að fara þangað í rútu, virkilega hressandi það. Við átutm leikinn gjörsamlega framan af og vorum 6 mörkum yfir í hálfleik og 7 mörkum á tímabili í byrjun seinni hálfleiks og það stefndi allt í stórsigur hjá okkur. Svo eins og í leiknum á móti AEK þá fór allt í baklás síðustu 20 min og leikurinn endaði með jafntefli 25-25. Virkilega svekkjandi niðurstaða miðað við gang leiksins og hreint ótrúlegt að við skyldum glutra niður þessari forystu gegn lakara liði. Margt jákvætt má þó taka útúr þessum leik og við viljum meina að þetta sé allt að þokast í rétta átt hjá okkur. Sóknarleikurinn gekk mun betur en í fyrsta leiknum og við eurm farnir að þekkja betur inn á hvorn annan. Ég spilaði nánast allan tímann í miðri vörninni og hægra megin sóknarlega. Mér gekk mjög vel varnarlega eins og í fyrsta leiknum og svo er ég farinn að komast betur inn í þetta sóknarlega. Ég setti 2 mörk og átti nokkrar stoðsendingar og var að finna menn vel í kringum mig.

Næsti leikur er svo á morgun á heimavelli gegn Argos og verður hann sýndur í sjónvarpinu um allt Grikkland. Það er geysilega mikilvægt fyrir okkur að komast almennilega á skrið núna og taka þennan leik sannfærandi.

Annað í fréttum er að moskítóflugur virðast vera rosalega hrifnar af mér og þær láta mig ekki i friði. Finn ca. 5 ný bit á hverjum degi, það er ekkert eðlilega pirrandi!

Ég er kominn í húsið og það er svo miklu þægilegra heldur en að vera endalaust á hótelum. Það er aðeins útúr og lengst upp á hæð með virkilega fallegu útsýni yfir allt. Hendi inn myndum og jafnvel einu rándýru myndbandi bráðlega.

Hótelmanagerinn á hótelinu sem ég var síðast á var ekkert lítið geðveikur í hausnum og ég varð vitni að því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að hann gekk í skrokk á starfsfólkinu sínu og öskraði á það hástöfum. Þetta þykir bara nokkuð eðlilegt hér, yfirmenn eiga víst að sýna aga og sýna fólki hver það er sem ræður!!

Jæja, best að drífa sig á æfingu... síðasta æfing fyrir leik gegn Argos. Núna er bara að taka á því!!!

Hef vonandi meiri tíma eftir leikinn á morgun til að henda inn almennilegri færslu.....

Hafið það sem allra best og sendið góða strauma á morgun ;)

Kær kveðja,

Raggi

Sunday, September 27, 2009

Jafntefli i fyrsta leik

Gott kvold, godir halsar!!!

I gaer var fyrsti leikurinn i deildinni og hann var a heimavelli gegn AEK Athens. Til ad byrja med var leikurinn jafn a ollum tolum og sterkar varnir einkenndu leikinn. Vid sigum svo framur thegar lida tok a fyrri halfleikinn og attum thrju mork i halfleik. Vid vorum ivid sterkari fyrrahluta seinni halfleiks og attum 5 mork um hann midjan. Tha skipta AEK menn yfir i mjog agressiva 3-2-1 vorn og vid attum fa svor vid henni. Til ad gera langa sogu stutta tha topudum vid nidur forskotinu og leikurinn endar med jafntefli. Gratleg urslit midad vid hvad vid vorum med tha i vasanum framan af leik. Eg spiladi sem thristur i midri vorninni allan timann og svo tok eg nokkrir soknir inn a milli. Mer gekk mjog vel og steig varla feilspor varnarlega og nadi svo ad nyta mer thann stutta tima sem eg var inn a soknarlega og setti 2 mork. Eg fekk goda doma fyrir minn leik og menn voru mjog anaegdir med mitt framlag. Eg hef nu thegar fengid vidurnefnid White Tower... AN GRINS!!!

Thad var otruleg upplifun ad spila sinn fyrsta leik herna uti og ohaett ad segja ad thetta se mjog frabrugdid thvi ad spila heima. Domararnir herna virdast svo tulka reglurnar allt odruvisi en gert er heima. Boltinn herna er miklu fastari og hradari og svo lengi sem madur ytir ekki med beinum hondum eda togar i treyju, tha ma gera hvad sem er..!! Menn eru lamdir i hakkabuff skipti eftir skipti og thad er ekkert tekid a thvi. Sem er ad sjalfsogdu mjog jakvaett fyrir mig, thar sem ad eg spila lykilhlutverk varnarlega ;)

Thad var hellingur af bullum sem fylgdi AEK lidinu alla leid fra Athenu og stemningin sem their skopudu var alveg mognud. Allir berir ad ofan, dansandi og syngjandi ALLAN TIMANN... annars var hollin okkar naestum thvi full og mikil laeti allan leikinn.

Hefdu att ad vera 2 stig i fyrsta leik... en nidurstadan er 1 stig a moti mjog sterku lidi sem spad er godu gengi i deildinni. Vid eigum eftir ad spila okkur betur saman og slipa soknarleikinn almennilega og tha eru okkur allir vegir faerir.

Eg aetla ekki ad hafa thetta lengra i nuna.. en eg geri faerslu mjog bradlega thegar eg verd kominn med netsamband fyrir mina tolvu. Set thetta almennilega upp... med myndum, videoum og odru sliku! Er kominn med nokkrar godar sogur i reynslubankann lika ;)

...og eg og Asta erum buin ad vera saman i 6 ar i dag! Otrulegt hvad timinn er fljotur ad lida... thessi dulla kemur ut i heimsokn til min eftir rumar 2 vikur!! Get ekki bedid... lovju honey ;*


Kaerar kvedjur fra Grikklandi,
White Tower

Thursday, September 24, 2009

Macedonia??? NO NO NO... SKOPJE!!

Juuuuu kalispera kaera folk... naer og fjaer!!

Tha er madur buinn ad vera uti i rumar 2 vikur og thad styttist allsvadalega i fyrsta leik!!!
Madur er ordinn rosa spenntur ad byrja fyrir alvoru med nyja lidinu og ekki skemmir fyrir ad fyrsti leikur er a moti mjog sterku lidi AEK Athens. Vid verdum a heimavelli, en frodir menn herna tala um ad thetta verdi liklega eins og ad spila a utivelli thvi ad AEK hefur storan studningsmannahop fra fotboltanum. Mer var sagt ad i fyrra hefdi komid 1000 AEK bullur med og allir verid berir ad ofan og verid med thvilik laeti, thannig ad thetta verdur ansi frodlegt!! ;)
Mer tokst ad togna a lidbondum i ilinni en eg er allur ad verda betri og thetta er ekkert sem hindrar mig i ad spila leikinn... mitt hlutverk verdur ad spila thrist i vorn og adra hvora skyttuna soknarlega... kemur betur i ljos a aefingu a eftir.

Annad i frettum er ad eg er enntha a hoteli en thau mal leysast liklega a allranaestu dogum og eg aetti ad vera kominn i husid eftir helgi... thad er svo sem ekkert mal ad vera a hoteli, en thad verdur freeekar boring til lengri tima.... eg hlakka thvi ansi mikid til ad komast thangad!

Vid erum bunir ad aefa eins og odir menn sidustu daga og vikur og thad skilar ser vonandi i godum urslitum a laugardaginn... thad er lika ansi erfitt ad aefa i thessum hita... en thad er klarlega ad venjast... asamt thvi ad hitinn fer laekkandi. Thad verdur tho seint sagt ad manni verdi mjog kalt herna... enda enntha a bilinu 22-27 gradur yfir daginn!

Grikkir hrepptu bronsverdlaun a EM i basket um daginn og their voru vaegast sagt sattir med thad... thykir ekki leidinlegt ad nefna thad allavega og litid annad sem komst ad i sjonvarpinu, enda mjog godur arangur hja theim.

Hvad er meira i thessu..... jaaaaa, astaedan fyrir titlinum a greininni er su ad herna vilja menn ekki kannast vid ad e-d sem heiti Macedonia se hreinlega til, eda rettara sagt ad landid theirra heiti thvi nafni....! Thetta er ad sjalfsogdu utaf gomlum timum thegar sa partur af Grikklandi sem eg er i het Macedonia... og fyrrum hofudborg Macedoniu er ju Thessaloniki... grikkirnir vidurkenna ekki nafnid a landinu theirra og gott daemi um thetta er t.d. thegar Spann og Macedonia voru ad keppa a EM um daginn... leikurinn var syndur i sjonvarpinu og nafnid a Macedoniu var alltaf thurrkad ut af skjanum... haha ekkert edlilega fyndid. I daglegu tali herna kallast landid einfaldlega Skopje...

Vid utlendingarnir i lidinu fengum fridag a sunnudaginn og skelltum okkur allir til Thessaloniki... thad var ekkert sma gaman ad sja thessa flottu borg loksins... eg er buinn ad skella nokkrum myndum af thvi inn a facebook.. getid skodad thar :)

Herna uti er ansi algengt ad folk ferdist um a vespum eda motorhjolum og thad er svo sem mjog edlilegt og varla fra sogu faerandi... en malid er ad lidid er nanast alltaf hjalmlaust!! Otrulegt ad sja thetta lid theysast herna um og oftar en ekki med einhvern aftan a.. og allir hjalmlausir!

Jaejaaa aetlea ad fara segja thetta gott i bili... en eitt i thessu... eg verd ad vidurkenna ad eg hef syndgad... ja thid heyrdud rett! Eg braut gullnu regluna i dag.. regluna sem eg helt ad eg myndi aldrei brjota!! Eg var i hlaupaskom vid gallabuxur.......... EG VEIT!!! Sjitt sko... sumir vilja kalla thetta Einar Ingi's Style en thetta kemur greinilega fyrir a bestu baejum..... eg hef goda afsokun, thetta er utaf ilinni... ekki vera reidur Gunni Steinn.. haha ;p

...og Asta er buin ad panta ser ferd til min!! veii thad verdur gaman ad fa hana :D hun kemur i 10 daga heimsokn um midjan okt og eg get ekki bedid.... nuna er bara ad finna ser tima og drifa sig ad panta ferd og kikja a kallinn kaera folk! ;)

Hafid thad sem allra best og verid god vid hvort annad... thad er bara svo miklu skemmtilegra svoleidis!!

Skrifa meira mjog fljotlega..

OVER AND OUT!

Friday, September 18, 2009

Reykingar, þrumuveður og grískir siðir

Júúú komiði sæl og blessuð....

Where to start, where to start.......?

Reykingar.... það er náttúrulega eitthvað djók! Hérna reykja allir... það er ótrúlegt. Sama hvar þeir eru, hvað þeir eru að gera, sama hvenær sólarhringsins, sama hvað þeir eru gamlir.... skiptir ekki máli. Átti ennþá eftir að segja frá því þegar ég var sóttur á flugvöllinn fyrir 10 dögum síðan... ég labba inn í komusalinn á flugvellinum í Thessaloniki og þar taka á móti mér 3 karlmenn.. presidentinn og 2 menn í stjórn félagsins.. þeir halda allir á sígarettupakka og kveikjara. Við spjöllum svo saman í smástund áður en við förum í bílinn og um leið og við setjumst uppí þá kveikja þeir sér allir í rettu.. og svo var bara reykjarmökkur inní bílnum þessar 20-30 mín sem það tók að keyra til Perea... svona er þetta allsstaðar hérna.. haha ekki alveg það sem maður hefur vanist.

Yfir í annað...! Við vorum á æfingu áðan... það er kannski ekki frá sögu færandi nema fyrir það að það var búið að vera geggjað veður í allan dag, 30-35 gráður. svo þegar æfingin er ca. hálfnuð þá fer rafmagnið snögglega af öllu íþróttahúsinu og maður heyrir þessar líka svakalegu þrumur... ég ásamt nokkrum öðrum stökkvum útúr íþróttasalnum og útí andyri.... sjiiiiiit ég hef aldrei séð aðra eins rigningu og rok!!!! veðrið breyttist sem sagt á nokkrum sekúndubrotum úr 32 gráðum og algeru logni í mestu rigningu sem ég hef á ævinni séð, þvílíkt rok og massífar þrumur og eldingar... mjög svo sérstök sjón! svo u.þ.b. hálftíma síðar var allt orðið gott aftur, rafmagn komið á húsið og menn héldu áfram eins og ekkert hefði í skorist....

Hvað er meira í þessu... jú hérna er rosalegur áhugi á fótbolta og körfubolta og það skiptir varla máli hvaða sjónvarpsstöð þú stillir á... það eru 90% líkur á að það sé annað hvort verið að sýna fótbolta eða körfubolta... líka alltaf endalaust af fólki að horfa á þetta á kaffihúsum og já bara basicly allstaðar þar sem hægt er að koma sjónvörpum fyrir... maður finnur líka fyrir því að áhugi fyrir handbolta fer gríðarlega vaxandi hér í landi og maður er oft stoppaður og spurður út í handboltann... hérna er þetta tiltölulega lítið samfélag þar sem flestir virðast þekkja flesta og maður finnur að það er vel fylgst með okkur....

Af liðinu er það að frétta að það er von á 3 leikmönnum í viðbót á allranæstu dögum sem eru að sinna herskyldu... þar af er einn orvhentur hornamaður sem er virkilega góður leikmaður... hann fékk 10 daga refsingu um daginn fyrir að taka myndir á símann sinn... það er víst stranglega bannað á meðan herskyldu er gegnt... jááá ekkert steikt það! þjálfarinn er ekkert farinn að slaka á hlaupunum.. þannig að menn eru orðnir ansi þreyttir! en það verður bara að bíða og sjá hvort þessi taktík skili tilætluðum árangri á endanum.

Man ekki meira í bili....

Núna fer maður að skella inn einhverjum skemmtilegum bloggum sem verða reglulega hér eftir.... eins og t.d. maður vikunnar o.fl.

Hafið það sem allra best og verið nú dugleg við að henda commentum á kallinn!!

ÁST, FRIÐUR OG EINTÓM HAMINGJA

Thursday, September 17, 2009

Fyrsta vikan i Greece!!

Jaeja kaeru vinir og felagar.... tha er fyrsta vikan i Grikklandi lidin og hun er buin ad vera ansi skrautleg og eg er strax ordinn reynslunni rikari.

Fyrir tha sem ekki vita tha er eg i 50 thus manna strandbae sem heitir Perea og er hann stadsettur 20 min fyrir utan Thessaloniki. Thetta er austarlega i Grikklandi og her er hreinlega allt annar menningarheimur, allt annad vedurfar, nanast oskiljanlegt tungumal og ymsar reglur sem madur hefur ekki adur vanist. Madur er tho alltaf ad komast meira og meira inn i thetta samfelag og farinn ad komast sjalfur leida sinna og annad slikt. Her er folkid rosalega vingjarnlegt og upp til hopa virkilega gott folk sem er skilningsrikt og ber virdingu fyrir thorfum annarra. Flestir tala litla sem enga ensku og thad getur stundum verid svolitid erfitt ad tja sig herna, en thad reddast alltaf a endanum. Ef madur talar bara nogu mikid i stikkordum og med eins hordum og lelegum hreim og mogulegt er tha skilur folk hvad thu ert ad tala um... "Me buy water", "You go not that way" o.s.frv. mjog fyndid sjitt sko...

Eg spila fyrir lid sem heitir Thermaikos og er i urvalsdeildinni her i Grikklandi... their voru i toppbarattunni i fyrra og vid vonumst til ad standa okkur alika vel a thessu timabili. Handboltinn her er i rauninni mun sterkari en eg bjost vid og sterkustu lidin eru virkilega god og her eru margir framurskarandi leikmenn. Hvad mitt lid vardar tha aettum vid ad vera med virkilega gott byrjunarlid, en hopurinn er frekar thunnur og thvi mikilvaegt ad menn nai ad haldast heilir. Vid erum 5 utlendingar herna sem spilum sem full time atvinnumenn... eg, einn svii, einn dani og tveir serbar og svo er restin grikkir, thar af einn virkilega godur hornamadur sem er i griska landslidinu. Lidid kemur til med ad snuast mest um thessa 6 leikmenn, thad er okkur utlendingana og griska landslidsmanninn. Thar fyrir utan er nokkrir grikkir sem eru aegaetis leikmenn og verda i startholunum til ad hvila threytta leikmenn.

Sviinn er i raun halfur svii og halfur kroati og er virkilega klokur leikmadur med hrikalega god skot, flottar hreyfingar og rosalega sendingataekni. Hann er playmaker(midjumadur) og mun sja um ad stjorna okkar leik i vetur. Daninn er markmadur, 2 m a haed og hefur faranlega mikinn skilning a leiknum. Hann les leikinn virkilega vel og min spa er ad hann verdi aldrei undir 40-50% markvorslu i vetur. Gridarlega oflugur leikmadur thar a ferd sem ad mun an efa reynast okkur dyrmaetur. Tha eru thad serbarnir thveir... annar er skytta, thvilikt ithrottamannslega vaxinn og fastur fyrir... hann er rosalegur varnarmadur og klokur soknarmadur sem kann leikinn upp a 10. Hinn serbinn er linumadur... hann er faranlega sterkur... taepir 2 m a haed og orugglega 120 kg. Hann er lika oflugur varnarmadur, asamt thvi ad vera med sterka blokk og mjog godar timasetningar soknarlega. Eg er strax farinn ad na mjog vel saman med thessum strakum inn a velli sem og utan hans og thetta eru allt edalnaungar...

Lidid er a pappirunum med eina sterkustu vornina i deildinni og thad mun an efa verda okkar helsta vopn i vetur... aggressiv 6-0 vorn thar sem barid er fra ser... haha an grins thad er virkilega barid fra ser... eg er nu thegar buinn ad fa sma kennslustund i griskum varnarfraedum og hvernig domgaeslan her virkar og hun er mjog frabrugdin theirri islensku... her virdist vera i lagi er buffa leikmenn svo lengi sem thu gerir thad ekki med beinum hondum og sert ekki aberandi grofari en hinir i vorninni... thetta likar mer :)

Thjalfarinn er rett rumlega fertugur grikki og hefur ekki mikla reynslu af thjalfun og hann er basicly thjalfari af thvi ad brodir hans er president yfir klubbnum. Hann er tho med sinar aherslur og sumt af thvi er mjog gott, annad ekki svo gott.... en thad er vist bara eins og gengur og gerist. Aefingaalagid er talsvert mikid og vid aefum alltaf sex daga vikunnar 1-2svar a dag i 2 og halfan tima i senn og coachinn leggur mikid uppur thvi ad halda monnum i formi og thvi er mjog mikid af hlaupum og minna af bolta... en thad fer nu liklegast ad snuast adeins vid.

Fyrsti leikur i deild er eftir 9 daga a heimavelli gegn AEK Athens... their eru ansi sterkir og thad er mjog mikilvaegt ad byrja a sigri. Svo erum vid i Evropukeppni lika og hun byrjar fljotlega lika... held ad thad se ekki alveg komid i ljos hverjum vid maetum thar... vid forum allavega beint inni 2. umferd.

Vedrid herna er buid ad vera virkilega gott og ekki skemmir ad her er strond eins langt og augad eygir og heitur sjor sem geggjad er ad synda i... bunar ad vera a bilinu 28-34 gradur alla dagana sem er ekki slaemt... nuna fra thessu timabili fer hitinn svo laekkandi... sem betur fer kannski hehe :)

Umferdin herna er i ruglinu og svo virdist sem hun se nokkurn veginn byggd a rod tilviljana... sa sem er frekastur gengur fyrir eda e-d alika... allavega er eg ekki ad atta mig a umferdarreglunum herna.... og hver einasti madur virdist eiga 1-2 bila.... frekar steikt.

Eg er enntha a hoteli thvi ad eg er enntha ad bida eftir ad husid sem eg a ad flytja inni se klart... thad verdur geggjad ad flytja thangad... risastort hus med 4 svefnherbergjum og geggjad utsyni yfir allt og alveg yfir til Thessaloniki.

En allavega... eg aetla ekki ad skrifa meira i bili. Eg mun verda eins duglegur og eg mogulega get ad setja inn faerslur herna svo ad thid getid fylgst med.

Endilega verid dugleg vid ad commenta og eg svara um leid og eg get.

Einnig haegt ad senda mer post a ragnarsnaer19@gmail.com og facebook.com/ragnar.njalsson

Skype adressan min er svo ragnar.snaer.njalsson

Hafid thad sem allra best og sjodheitar kvedjur heim a KLAKANN!!! :)