Ragnar Njálsson
Wednesday, March 23, 2011
Tuesday, May 11, 2010
Smá samantekt... FINALLY ;)
Sælt veri fólkið... loksins loksins hugsa eflaust flestir.. en betra er seint en aldrei vinir ;)
Tímabilið er í rauninni búið að vera ótrúlegt. Hrikalega erfitt að lýsa þessu öllu með einhverjum orðum. Hlutirnir sem maður hefur upplifað og sumt sem maður hefur séð er gjörsamlega ólýsanlegt. Ég byrjaði á að fara á vit ævintýranna í Grikklandi og allir vita hvernig það ævintýri endaði. Það þýðir þó ekki að sú ákvörðun hafi verið til einskis, eða til ills. Þvert á móti. Ég hef þroskast gríðarlega sem manneskja og sem leikmaður. Ég spilaði vel úti í Grikklandi og skapaði mér gott orð sem leikmaður og þrátt fyrir að ég hafi tapað gríðarlegum peningum, þá sé ég ekki eftir að hafa farið. Ekki í eina mínútu. Þvílíkt ævintýri sem þetta var og þá meina ég það á bæði eins jákvæðan og neikvæðan hátt og það getur hugsast. Allavega, þetta er að baki. Í janúar samdi ég við HSC Bad Neustadt sem er í Regionalligu suður hérna í Þýskalandi. Sem sagt þriðju efstu deild. Regionalligurnar eru nú samtals 6 að tölu (ef að ég man rétt) og er sú sem ég spilaði nú í sú langsterkasta og segja fróðir menn að ansi litlu, ef einhverju, muni á minni deild og 2. Bundesligu. Enn og aftur heyrðust einhverjar efasemdaraddir þegar maður ákvað að skella sér á þennan valkost, frekar en eitthvað annað sem var í boði. Ég veit ekki hvað þetta er, ég held að mér líki bara svona vel að vera umdeildur. En nei, svona án alls gríns þá held ég að þetta hafi verið hið fullkomna skref fyrir mig. Þetta var skref númer 2 í stiganum mínum. Mörg skref eru eftir, en þannig á það líka að vera. Ég er að gera þetta á mínum forsendum og þetta er mín leið. Sú leið sem ég er handviss um að muni gera sig þegar uppi er staðið. Ég er með ákveðin markmið í gangi og þeir sem þekkja mig best þurfa nú ekki að velta því lengi fyrir sér hver þau eru. Ég stefni ótrauður á þessi markmið og hef aldrei hætt að trúa að þau muni verða að veruleika. Bara spurning um hvenær, og ef ég þekki sjálfan mig rétt þá er styttra í það en margur hefði haldið. Þessi seinni partur tímabilsins er búinn að vera framar öllum björtustu vonum. Líkt og þegar ég fór út til Grikklands, þá vissi ég ekkert við hverju átti að búast. Hvernig eru gæðin á boltanum? Er þetta of stórt skref? Er þetta of lítið skref? Get ég verið einn úti? Hvernig verður hnéið? Hvernig fitta ég inn í kúltúrinn? Hvernig fitta ég inn í Þýska boltann? Þetta er bara partur af því sem fór strax í gegnum hugann. Hver einn og einasti þáttur þessa ferlis hefur verið svo 100% að það er nánast lygilegt. Mér hefur aldrei gengið betur. Ég hef aldrei verið betri í handbolta. Minn sterkasti þáttur sem leikmaður, varnarleikurinn, hefur farið enn meira vaxandi. Skilningurinn sem ég hef orðið á leiknum og reynslan sem ég hef þegar öðlast er eitthvað sem erfitt er að lýsa hér. Sóknarleikurinn hefur einnig jafnt og þétt farið vaxandi, sem og allar aðrar hliðar leiksins. Ég er á stuttum tíma búinn að vaxa uppúr efnilegum litlum meiðslapésa í góðan leikmann og finn að ég vex með hverjum deginum sem líður. Umgjörðin kringum klúbbinn er eins og best verður á kosið og í rauninni ekki annað hægt að segja en að maður sé hálfdekraður hérna. Þetta er mikill fjölskylduklúbbur þar sem lagt er mikið upp úr því að leikmönnum líði vel og séu ánægðir. Áhuginn fyrir handbolta hérna er gríðarlega mikill og þetta minnir mig svolítið á gömlu góðu tímana heima á Akureyri, þegar einfaldlega allt snérist um handbolta. Nú er ég hins vegar í talsvert öðru og skemmtilegra hlutverki og fæ að vera stór partur af þessu öllu saman. Það eitt og sér væri í rauninni nóg verðlaun fyrir mig, en er eingöngu lítill partur af því skemmtilega og risastóra batteríi sem snýst í kringum klúbbinn. Það tæki langan tíma að fara að telja upp allt hér sem hefur drifið á daga mína, eða lista allt sem ég er ánægður með og eflaust fáir sem myndu nenna að lesa svoleiðis kjaftæði. Ég er allavega ánægður, mér líður vel, ég veit innra með mér að ég tók rétta skrefið, ég veit að ég er á réttri braut í átt að mínum markmiðum, tímabilið hefur gengið hrikalega vel, ég er búinn að skrifa undir nýjan samning við klúbbinn fyrir næsta ár og ég hef ansi góða tilfinningu fyrir að næsta tímabil verði mitt tímabil. Þetta er svona það sem rennur í gegnum hugann núna.
Nú er ég nýkominn úr aðgerð sem virðist hafa tekist bara ansi vel og við tekur erfitt program næstu vikurnar. Þetta er hins vegar jákvætt skref fyrir mig, það er ég viss um. Heimsklassa læknir sem framkvæmdi aðgerðina og hann er að gefa mér 100% batahorfur ef allt gengur upp. Það er rosalega skemmtilegt að hugsa út í það að ég gæti verið að fara spila handbolta af 100% krafti á næsta tímabili, vá sko! Það hefur ekki gerst síðan ég var 17 ára. Tilhugsunin við að geta æft og spilað verkjalaus...... Ætla ekki einu sinni að segja ykkur hversu mikið ég mun leggja á mig núna til að láta það verða að veruleika!
Nú svo er ég að koma heim á klakann von bráðar. Reikna með að það verði á næstu 2-3 dögum... á allt eftir að ráðast út af þessu blessaða eldfjalli okkar. Löppin er ekki að fara samþykkja eitthvað annað en beint flug heim á fyrsta farrými, en ekki eitthvað millilendingarbíó þar sem bíða þarf klukkustundum saman.
Svo er nú ekki hægt að klára þessa færslu án þess að minnast á nokkra góða pæja sem eru manni nákomnir!!! Fyrstan ber nú kannski að nefna hann Gunna Stein sem er búinn að eiga gjörsamlega fáránlegt tímabil.... ég get varla lýst því hversu stoltur ég er af drengnum... Árni Sigtryggs er að koma út til Þýskalands og Halla með honum.. það verður magnað að fá svona góða vini hingað nálægt!! Get ekki beðið... Svo er Addi Mall búinn að semja líka.. verður gaman að fá hann í menninguna! Einsi er búinn að standa sig eins og hetja hjá Nordhorn.. góðar kveðjur þangað... Er stoltur af Akureyringunum mínum svo...! Vantaði bara herslumuninn að klára hlutina og komast í úrslitin.... Vinur minn Jonni Magg að fara til Noregs og þar mun annar snillingur hann Gunni Magg þjálfa... innilega til lukku allir saman og auðvitað svo miklu fleiri sem maður man ekki eftir akkúrat núna..!! ...og auðvitað Haukar með titilinn heima ;)
Enda þetta á tveimur myndum:

Hérna er kallinn vægast sagt öruggur á 7 metrunum... ;)
Góðar stundir gott fólk og hafið það sem allra best!!!
Kær kveðja,
Raggi
Friday, November 27, 2009
Styttist í heimkomu :)
Verð að opna þessa færslu á agalega góðu lagi sem er á repeat hjá mér þessa dagana:
http://www.youtube.com/watch?v=Wd0Y1Sko7hA
Héðan er bara nokkuð gott að frétta og menn eru í ferskari kantinum. Í fréttum er helst að við spiluðum síðastliðna helgi við topplið Zafeirakis á heimavelli þeirra. Þessi leikur var jafn á nánast öllum tölum frá byrjun til enda og endaði með grátlegu eins marks tapi, 30-29. Það var virkilega mikil stemmning á leiknum og áðdáendur Zafeirakis eiga hrós skilið fyrir flottan stuðning. Alltaf gaman að spila svona leiki þar sem maður heyrir ekki í sjálfum sér fyrir hávaða. Sama hvort það er á heima- eða útivelli. Ég fékk tækifæri þegar það voru 2 sek til leiksloka að jafna... fékk boltann fyrir utan og hamraði á markið en setti hann í utanverða stöngina... virkilega svekkjandi! En svona er þetta stundum, stöngin inn - stöngin út... þetta er bara svoleiðis sport. Annars gekk mér bara vel í leiknum, setti 4 góð mörk, fann aðra vel og stóð vörnina með miklum sóma.
Næsti leikur er á morgun en það er sjónvarpsleikur gegn Filippos Veroias... þeir eru með hörkulið og mikla sögu á bak við sig. Menn tala um að þetta sé frægasta nafnið héðan frá Grikklandi, en fyrir nokkrum árum síðan voru þeir að gera góða hluti heima og í Evrópukeppnunum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá 2 stig út úr þessum leik á morgun til að laga stöðu okkar í deildinni aðeins, en stigin hafa ekki verið að detta inn hjá okkur eftir að danski markmaðurinn meiddist. Það hefur verið hrikalegur missir, því hann er solid 20-25 bolta maður í hverjum leik og vinnur virkilega vel með okkur í 6-0 vörninni. Góðu fréttirnar eru þær að hann mun spila á morgun, þannig að ég hef enga trú á öðru en að við komumst aftur á sigurbraut.
Meira í þessu... búið er að draga í 16 liða úrslit í Evrópukeppninni. Fengum Sporting Club Lissabon sem er mjög skemmtilegur og krefjandi dráttur og það verður nú örugglega ekkert leiðinlegt að skella sér til Portúgals.
Svo er maður búinn að panta sér flugmiða heim fyrir jólin!!! Ég lendi á klakanum þann 20. des um kvöldið og keyri norður til Akureyrar með henni Ástu minni morguninn eftir. Get eiginlega ekki lýst því hvað manni hlakkar til að komast heim í smá frí og hitta allt fólkið sitt! ;)
Svo vil ég enda þetta á einu stutti vidjói í tilefni þess að það styttist í grannaslaginn PAOK-Thermaikos... DJÖFULL verður það skemmtilegt!! ;)
http://www.youtube.com/watch?v=YlhXapbZhcM
Hafið það sem allra best snillingar!!
Njálsson kveður að sinni... :)
Monday, November 16, 2009
Margt búið að gerast......
Halló allir... hvítir sem svartir sem gulir sem gráir!
Hér er ætlunin að henda inn einu örstuttu bloggi, þar sem að ég er gjörsamlega búinn að skíta upp á bak í bloggskrifum mínum hingað til.... en óhætt er að segja að félagi minn hann RK Berlín hafi komist vel að orði þegar hann sagði að ég væri í tuddaformi inn á vellinum, en hrikalega slöku bloggformi! Ætlunin er að bæta úr þessu og fara að hysja upp um sig brækurnar... ég er líka með þá hugmynd í kollinum að skrifa mun tíðar og mun styttra í einu ( svona nettur twitter fílingur)... er fólk að taka vel í það?? Eða er það kannski frekar ópersónulegt? You tell me......
En já... það er óhætt að segja að margt hafi gerst síðan ég henti inn færslu síðast! Menn eru ekki beint að deyja úr stressi hérna í Grikklandinu og eins ég var áður búinn að koma inn á þá eru þessi kvikindi latari en allt.. og ekki sjaldgæft að maður þurfi að segja sama hlutinn við fólk aftur og aftur til að fá hann framkvæmdan! Það er líka svolítið þannig hjá gæjunum í kringum klúbbinn.. þeir eru svolítið stórir í kjaftinum... en eiga erfiðara með að framkvæma það sem þeir segja... einfaldir hlutir eins og að fá internet í heimahúsið.... hita á húsið ( já HITA, það er byrjað að kólna aðeins) og annað slíkt. Einnig er það bara eðlilegt fyrir þeim að borga manni 2-3 vikum of seint.... en hey! svona er andrúmsloftið hérna bara... menn eru ansi hreint slakir á því og hægt að sjá bæði jákvæða og neikvæða hluti við það.
En yfir í það næsta... við erum búnir að spila nokkra leiki síðan síðast og ber þar hæst að nefna síðustu þrjá... spiluðum í síðustu viku við Jóa og félaga í Panellinios og er óhætt að segja að við höfum spilað illa í þeim leik... þeir tóku okkur í kennslu í handboltafræðum og unnu nokkuð auðveldan sigur á okkur.... ég meiddist frekar snemma leiks og þurfti að fara útaf! fór úr lið á putta og brákaðist.... en það er allt að koma til núna. Jói stóð sig hins vegar vel og var ekki leiðinlegt að hitta kallinn loksins... hrikalega gott að geta talað aðeins íslensku og slakað á með fellow icelander! Ég held ég geti líka fullyrt að við höfum vera að skrifa part af sögubókunum með þessum leik... klárlega í fyrsti skipti þar sem íslendingar mætast í grísku deildinni!! vúhú...
Núna um helgina voru svo leikir í 3. umferð Evrópukeppninnar á móti sterku liði RK Berrane frá Serbíu... þetta er í 3. skipti sem ég er svo heppinn að fá það tækifæri að taka þátt í Evrópukeppni með mínu liði... alltaf skemmtileg tilfinning! Meira undir einhvern veginn og mikill heiður að spila gegn sterkum liðum... Hef spilað áður með KA og HK í þessum keppnum.
Allavega, það er óhætt að segja að mér hafi gengið hrikalega vel í þessum leikjum og vakið mikla athygli. Í fyrri leiknum á laugardaginn fór ég fyrir mínu liði og það gekk einhvern veginn allt fullkomlega upp sem ég gerði... mér leið frábærlega inn á vellinum og greinilegt að aukaæfingarnar eru að skila sér... ræktin, skotin og hugsunin... allt sem ég talaði um í síðustu færslu. Ég setti 14 mörk ú 15 skotum í þessum leik og aðeins 3 þeirra úr vítum... einnig átti ég nokkrar góðar stoðsendingar og spilaði í hjarta varnarinnar. Hrikalega gaman að sýna hvað maður getur á þessu leveli og hef ég fengið mikla athygli frá grískum fjölmiðlum eftir þennan leik... og mér finnst það heldur ekkert leiðinlegt... hehe
Ég hins vegar VERÐ að fara núna....
lofa að klára framhaldið á morgun!!! Bíðið spennt
Hafið það sem allra best,
Riiisastór kveðja,
Raggi
Saturday, October 31, 2009
Fyrsta tapið staðreynd, en ég markahæstur 3. leikinn í röð!
Síðasti leikur var á laugardaginn á móti Kilkis á heimavelli. Fyrirfram var búist við hörkuleik, enda um tvö jöfn lið að ræða. Lið sem geta bæði blandað sér í toppbaráttuna ef rétt er haldið á spilunum. Sú varð raunin, jafnt á nánast öllum tölum og mikil spenna. Jafnt var í hálfleik og enn þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Við gerum svo nokkur afdrifarík mistök sóknarlega, ásamt því sem okkar skapheiti þjálfari fékk 2 mín á crucial tímapunkti. Ég gæti svo talað vel og lengi um þátt dómaranna, en læt nægja að segja að þeir áttu ekki sinn besta dag og óhætt að segja að það hafi hallað ansi mikið á okkur. Leikurinn endar með hrikalega svekkjandi tveggja marka tapi og fyrsta tapið í deildinni því staðreynd. Ég átti ágætis leik og var markahæstur í okkar liði 3. leikinn í röð, með 7 mörk í þetta skiptið.
Talandi um markaskorun, þá er ég eins og stendur markahæsti maður liðsins í deildinni með 25 mörk eftir 5 leiki og 10. markahæsti maðurinn í deildinni. Það er ánægjulegt, þó svo að það sé ekki það sem mestu máli skiptir heldur gengi liðsins. Ég veit hins vegar að ég get gert enn betur og það er það sem ég ætla mér að gera. Markmiðasetning er hugtak sem ég er alltaf að tileinka mér betur og betur og það hjálpar mér gríðarlega mikið að setja sjálfum mér stighækkandi markmið fyrir ca. 1-2 mánuði í senn. Ég er búinn að setja mér 4 lítil markmið sem ég ætla mér að ná fyrir jólafrí. Ég ætla að sýna ykkur styttar útgáfur af þessum markmiðum hérna, svona aðeins til að útskýra hvernig ég hugsa hlutina og hvað það er sem ég geri til að reyna að bæta leik minn:
1. Verða enn betri varnarmaður. Bæta fótavinnu, tímasetningar og tækni við að brjóta á sóknarmönnum. Skoða einnig staðsetningar þegar bolti er ekki nálægt, til að mynda gagnvart línumanni til að auðvelda varnarvinnu mína og samspilara minna seinna meir.
2. Hugsa út fyrir rammann á hverri einustu æfingu. Hugsa fram í tímann í hverju atriði og reyna að sjá það sem aðrir sjá ekki og auka þannig sýn mína yfir völlinn og leikinn í heild sinni. Reyna sjá mismunandi vinkla á hlutunum og að kryfja hvert atriði niður í huganum og bæta þannig ákvörðunartöku. Alltaf að beita jákvæðu hugarfari og framkvæma hlutina með opnum huga.
3. Vera sífelld ógn sóknarlega. Bæta hreyfingu án bolta, tímasetningu hlaupa og minnka skref í aðhlaupi til að auka sprengju og auðvelda stefnubreytingar. Bæta skottækni enn meira og nota 20 mín eftir hverja æfingu til að æfa mismunandi týpur af skotum. Stefnan sett á að vera markahæsti maður míns liðs fyrir jól.
4. Vera eins professional og mögulegt er í mataræði og svefnvenjum. Aldrei að láta viðráðanlegar utanaðkomandi aðstæður hafa áhrif á frammistöðu mína inn á vellinum. Taka aukarækt alltaf þegar möguleiki er á og leikjaplan leyfir. Þar legg ég mjög mikla áherslu á lappir, maga og bak.
Þetta er svona ca. það sem ég var búinn að setja niður á blað og er þegar farinn að vinna á fullu í.
Næsti leikur er á útivelli gegn Edessa, en þeir eru búnir að styrkja sig talsvert frá síðustu leiktíð og eru sem stendur einu stigi á undan okkur í 4. sæti.
Annað í fréttum er að Ásta mín kom í heimsókn og var í 10 daga. Það var magnaður tími og við gerðum margt og mikið, m.a. verslunarferð til Thessaloniki og fullt fleira. Vonandi að hún komi oftar í heimsókn þessi elska, því þá er allt svo miklu auðveldara. En ef að fólk er áhugasamt um að koma út í heimsókn, þá er bara um að gera að heyra í mér og við græjum einhvern góðan pakka.
Ég og Ásta áttum 10 æðislega daga
Ég vil svo nota tækifærið og óska góðum vini mínum honum Heiðmari Guðmundssyni, innilega til hamingju með daginn!! ;)
Jæja, ég verð að þjóta! Hafið það sem allra best öllsömul og endilega skiljið eftir comment og ég svara um leið og ég get :)
Kær kv.
Raggi
Friday, October 23, 2009
Fyrsti sigurinn í höfn!!
Ég ætla að hafa þetta stutt í þetta skiptið þar sem að hún Ásta mín er í heimsókn og það þýðir ekkert að vera að eyða tíma á internetinu..... ;)
Um síðustu helgi fórum við til Krítar og spiluðum við Kydon Hanion, en þeir eru með ansi gott lið þetta tímabilið. Við vissum því að við ættum erfiðan leik fyrir höndum og þyrftum að spila okkar besta leik til að vinna. Eins og oft áður þá var mikið jafnræði með liðunum framan af leik og mikið um harðar varnir. Við náðum hins vegar að hrista þá af okkur fljótlega og vorum yfir í hálfleik. Við komumst síðan mest í 8 marka forystu í seinni hálfleik, en þeir náðu að minnka muninn niður í 2 mörk á tímabili. Þá sögðum við hingað og ekki lengra og jukum muninn aftur. Leikurinn endaði svo með gríðarlega sanngjörnum og mikilvægum 5 marka sigri, 29-34. Ég var að finna mig hrikalega vel í þessum leik og setti 10 slummur í öllum regnbogans litum!! Ekki leiðinlegt það...
Annars var þvílíkt gaman að koma til Krítar og get sagt með vissu að ég mun koma þangað aftur. Get ekki sagt annað en að það kitli svolítið að fara þangað í vikufrí eftir tímabilið. Endilega látið mig vita ef þið eruð game ;)
Næsti leikur er svo á morgun á heimavelli gegn Kilkis og það verður einnig mjög erfiður leikur, en liðin virðast vera mjög jöfn í deildinni í ár og allir eru að vinna alla.
Annað í fréttum er að Ásta er búin að vera hérna í nokkra daga og það er alger snilld. Við erum búin að vera dugleg við að skoða okkur um og fórum meðal annars í dagsferð til Thessaloniki á miðvikudaginn. Fórum í allar helstu búðirnar og Ásta var ekki í vandræðum með að finna sér föt ;)
Hendi inn góðu bloggi eftir leikinn og skelli inn fullt af ferskum myndum.
Manneskja vikunnar: Gústaf Úlfarsson, fyrir að vera hreinræktaður snillingur sem alltaf er hægt að treysta á. Maður sem allir geta tekið sér til fyrirmyndar.
Hafið það gott kæra fólk.
#44
Sunday, October 11, 2009
Enn eitt jafnteflið
Dagurinn í dag er búinn að vera hreint út sagt magnaður. Fátt betra en að taka einn dag í góða afslöppun eftir erfiða törn. Veðrið seinustu daga er búið að vera mjög gott, á bilinu 28-34°, og dagurinn í dag var engin undantekning þar á. Við útlendingarnir í liðinu fórum á ströndina og höfðum það virkilega nice. Ég verð reyndar að viðurkenna að þetta var alltof heitt fyrir mig og ég eyddi mest öllum tímanum í sjónum, en það er ekki síður afslappandi. Nauðsynlegt að safna orku í frítímanum sem maður hefur og mæta endurnærður í næstu törn.
Í gær spiluðum við 3. leikinn í deildinni. Þetta skiptið á heimavelli gegn Argos og var þetta sjónvarpsleikur sem var sýndur um allt grikkland. Vegna þessa var leikurinn kl. 15 á heitasta tíma dagsins. Ég held að það hafi verið ca. 40° gráðu hiti inn í höllinni þegar leikurinn byrjaði og það er e-ð sem ég er ekki beint vanur. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og sterkum vörnum, enda mikilvægur fyrir bæði lið. Leikurinn var jafn á nánast öllum tölum í fyrri hálfleik og jafnt var í hálfleik 11-11. Eins og fyrri leikjunum tveim, þá byrjaði sóknarleikurinn okkar að hiksta aðeins í seinni hálfleik og þeir voru mest allan tímann 1-2 mörkum yfir. Við náðum hins vegar að hrista af okkur slenið og komumst aftur yfir þegar lítið var eftir af leiknum 21-20. Þeir ná að jafna leikinn með skítamarki úr horninu og við erum með boltann í stöðunni 21-21 og mínúta eftir. Við tökum langa og góða sókn og þegar 15 sek eru eftir þá fæ ég boltann hægra megin og kem mér upplagt færi og hamra boltanum í innanverða stöngina og þaðan í bakið á markmanninum, en á einhvern ótrúlegan hátt fer boltinn ekki inn og því enn eitt svekkjandi jafnteflið staðreynd. Hefði verið gaman að vera hetjan, en í þetta skiptið var þetta bara sentimetraspursmál og alveg á hreinu að þetta augnablik fer í reynslubankann.
Ég er alltaf að finna mig betur og betur og líkaminn alltaf að komast í betra stand eftir meiðslin í byrjun. Í þessum leik spilaði ég allan tímann og þjálfarinn hefur augljóslega gríðarlega mikla trú mér. Ég spila þrist varnarlega og vinstri og hægri skyttuna til skiptis sóknarlega. Mér gekk vel varnarlega eins og í fyrstu tveimur leikjunum og mér finnst ég alltaf vera að vaxa meira og meira sem varnarmaður og ég tel að gríska deildin sé mjög góður skóli fyrir mig. Sóknarlega er ég að komast meira inn í þetta og í þessum leik setti ég fjögur góð mörk. Ilin er ennþá aðeins að há mér, en er án efa að verða betri og ég held að þetta sé allt að koma. Það tekur tíma fyrir okkur stuðlana þrjá að slípa okkur saman, en ég er sannfærður um að það er allt á réttri leið og þegar það verður orðið gott þá verðum við illviðráðanlegir. Varnarlega erum við gríðarlega sterkir og haft hefur verið orð á því í dagblöðum að við séum með sterkustu vörnina í deildinni.
Það er mjög auðvelt að segja að við ættum að vera með 6 stig eftir 3 leiki og með smá heppni er það eflaust rétt. Hins vegar er ljósi punkturinn í þessu að allir virðast vera vinna alla í deildinni og þetta skiptir því vonandi ekki sköpum þegar uppi er staðið, því við eigum bara eftir að spila betur. Það hefur komið mér virkilega á óvart hvað þetta er sterkur bolti hérna niðurfrá og hér er mikið af leikmönnum sem kunna leikinn upp á 10.
Svo maður detti aðeins yfir í væmnu nóturnar, þá er ég gríðarlega ánægður með að hafa stigið þetta skref á þessum tíma. Það er einfaldlega vegna þess að ég hef í langan tíma verið að glíma við erfið meiðsli sem hafa háð mér og minni spilamennsku svo um munar. Ég hafði alltof lengi spilað af 50% krafti og ekki getað beitt mér að því leyti sem ég veit að ég get þegar allt er í lagi. Að mínu mati stóð ég á ákveðnum krossgötum, þ.e.a.s. annaðhvort var að hætta og fara að einbeita sér að öðru eða halda áfram að berjast og leggja ennþá meira á sig til að halda í drauminn. Ég tel mig hafa tekið rétta ákvörðun og öðlast virkilega stórt tækifæri sem ég ætla mér að nýta. Núna er maður farinn að kynnast því af hverju það er svona eftirsótt að vera atvinnumaður í íþróttum og af hverju maður hefur haldið í þennan draum svona lengi. Ef guð og lukka lofar þá er þetta vonandi bara fyrsta þrepið í þessum stiga sem ég sé fyrir mér. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að Grikkland er ekki sterkasta handboltaþjóð í heimi, en fyrir mér er þetta mjög góð byrjun og í raun framar björtustu vonum. Ég trúi því einfaldlega að ef þú gerir hvað sem þú mögulega getur til að stefna á næsta þrep í stiganum þá muntu á endanum komst upp hann allan og gott betur en það.
Næsti leikur er á Krít eftir 4 daga á móti Kydon Hanion og við förum einum degi fyrr. Nú er bara að vona að við komumst almennilega á skrið og hendum inn fyrsta sigrinum.
Núna keyrir maður meiri metnað í bloggin og aldrei að vita nema tækniundrið ég hendi inn myndum og jafnvel videoum í næstu færslu.
Manneskja vikunnar: Svala Fanney Njálsdóttir, fyrir að vera besta systir í heimi.
Heimasíða vikunnar: Sporttv.is, fyrir gera manni kleift að fylgjast með félögunum heima. Frábært framtak.
Einnig vil ég benda fólki á að meistarinn sjálfur, hann Einar Ingi Hrafnsson, er kominn með heimasíðu. Fólk verður seint svikið á að lesa gullmolana sem koma frá þeim manni. Sjá link hér til hliðar.
Hafið það sem allra best og kærar kveðjur heim...
Kv. Raggi
